Samtíðin - 01.05.1958, Blaðsíða 10
6
SAMTÍÐIN
Kvennaþættir Samtiðarinnar — ^itátjón ^reyja
+ Trapez- og ballon-tízkan
1 NÝKOMNUM frönskum blöð-
um ber einna mest á trapez- og ball-
on-linunum svonefndu. Pokakjólar
sjást þar einnig, og er víddin þá aðal-
lega í bakið allt frá hálsmáli og niður
að faldi.
Italska tízkan virðist ekki eins yfii-
drifin. Mittið er þar oftast á réttum
stað og mikið um rykkingar og fell-
ingar í pilsum. Að vísu er trapez-
línan með mittið^iér um bil á réttum
stað ýmist að aftan eða framan, en
pilsið er alltaf slétt. Það slær sér út
að neðan með klukkulagi, eins og
faldinum veiti lítið eitt inn á við.
Á tízkusýningum um þessar mund-
ir eru allir kjólar mjög stuttir, ná
rétt niður fyrir bné. Nú er eftir að
vita, livernig fólk tekur þessu eða
hvernig það klæðir. — Skírir, ljósir
litir eru í tízku.
ir Ráð til ungrar konu
HUSMÖÐIR í norðlenzkri sveit
skrifar mér ágætt bréf og spyr um
ýmislegt, sem að snyrtingu lýtur.
Ilenni vil ég svara þessu:
Betra væri að nota rauðleitt dag-
krem. Bay-Dew með sólarlit er ágætt.
Þá þarf lítið púður, jafnvel ekkert
að sumarlagi. Yfirleitt er bezt að láta
kremið, t. d. skin-clearing krem liggja
á svolitinn tíma, en þurrka það síð-
an af og púðra sig eða smyrja á eftir
með Day-Dew.
Hreinsa skal allt púður og krem
af andlitinu á hverju kvöldi með
hreinsunarkremi og þvo sér í framan
á eftir. Gott er að nota oft andlits-
vatn: lotion. Það hreinsar vel og
liressir húðina. Andlitið má þvo úr
sápu eins oft og hverjum sýnist. —
Nauðsynlegt er að sofa með næring-
arkrem á nóttunni, nema hvað rétt
er að hvíla liúðina á því 1—2 nætur
á viku.
Hér á landi er ekkert gert að því
að gefa rafmagnsnudd við slöppuin
brjóstum, eins og á sér stað erlendis.
En eitt gott ráð þekki ég, sem að vísu
tekur langan tíma, en kemur að
gagni: að bursta á sér brjóstin upp á
við með fremur stífum bursta á
hverjum degi og þá auðvitað lielzt
allan líkamann. Það hressir húðina
ótrúlega vel og örvar blóðrásina til
hennar.
Clearing-krem er gott, bæði sem
nætur- og dagkrem.
jr Tengdamóður-vandamál
EIN AF ÁTJÁN skrifar: Iværu
þættir. Mig langar að spyrja ykkur
ráða. Ég hef verið gift í 2 ár, og
tengdamóðir mín þjáir mig. Til að
hyrja með leit ég inn til hennar við
og við, en alltaf hafði hún eitthvað á
Framleiöum lcápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
KAPAN H.F. Laugavegi 35. — Sími 14278.