Samtíðin - 01.05.1958, Blaðsíða 12
8
SAMTÍÐIN
Kjörréttir mánaðarins
STEIKT KÁLFALIFUR. Lifrin er
skorin í lengjur og steikt i smjöri
ásamt einum brytjuðum laulc og
brytjuöum gulrótum (bezt væri að
hafa ætisveppa), en einnig tveim
brytjuðum eplum. Þetta er látið
malla stutta stund í svolitlu vatni,
en einnig má láta hlemm yfir, og
myndast þá hæfilegur lögur sem sósa.
Soðnar kartöflur og grænt salat er
borið með.
PÖNNUKÖKUR með appelsínusósu.
20 g af smjöri eru brædd í skaftpotti
ásamt 2 msk. flórsykri. Börkur af
hálfri sítrónu og einni appelsínu er
rifinn niður og látinn út í ásamt saf-
anum úr appelsínunni. Þessari ljúf-
fengu sósu er síðan hellt yfir volgar,
upp undnar pönnukökurnar.
FltÆ^IR ORÐSKVIÐIIt
Vertu vægur og umburðarlyndur
við alla nema sjálfan þig.
Töpuð stund er skuld, er greiða
verður með okurvöxtum.
Augun eru spegill sálarinnar.
Flýttu þér hægt.
Karlmenn semja lögin. Konurnar
skapa siðferðið.
ÞÚSUNDIR kvenna og karla lesa
kvennaþætti Samtíðarinnar með vaxandi
athygli. — Sendið okkur áskriftarpöntun-
ina neðst á bls. 32 strax í dag, og við póst-
sendum yður blaðið tafarlaust ásamt ein-
um eldri árgangi í kaupbæti.
Sigurður Reynir Pétursson
hœstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14. Símar 22870 og 19478.
Draumaráðningar
• SYKUR. Það er þér fyrir góðu
að dreyma sykur.
• KÖTTUR. Kettir í draumi eru
óheillaboði, nema þeir séu dauðir.
Lifandi kettir tákna óvini og fláráða
menn. Ef lieitbundna stúlku dreymir
kött, er unnusti hennar ótrúr.
• GAMALMENNI. Það veit á
gott, ef þig dreymir gamalmenni. Þá
munt þú verða gæfusamur.
• NAGLI. Mjóir og spegilfagrir
naglar vita á hagnað, en ryðgaðir
naglar eru fyrir rógi og illmæli.
• GlTAR. Gítarspil í draumi er
fyrir því, að sá eða sú, sem þú elsk-
ar, reynist þér trúr (trú).
♦ ÞAÐ ER SAGT: ♦
að sumir trúi öllu, ef því er hvíslað
að þeim.
♦
að þeir, sem alltaf eru að sparka í
aðra, eiga oft furðu örðugt með
að standa á eigin fótum.
♦
að stjórnmálamenn þiggi peninga
hjá ríkum og atkvæði hjá fátæk-
um gegn því að vernda.þá hvora
fyrir öðrum.
♦
að gaman sé eins og líftrygging. Það
kosti þvi meira sem við verðum
eldri.
♦
að konutár séu áhrifamesta vatnsafl
veraldarinnar.
Húfugerð. Herraverzlun.
JP. EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavík. Sími 10199.