Fréttablaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 37
Hátíðarkveðja!
Ísland er gjöfult og auðugt land. Þjóðin er öflug, vel menntuð, sveigjanleg,
afkastamikil, samheldin og samhent. Fjölskyldan er í öndvegi og innviðirnir
traustir. Menningararfurinn og saga þjóðarinnar standa á einstökum grunni.
Slík þjóð getur aðeins átt sér bjarta framtíð. Hún má þó gjarnan gæta þess
að sníða sér stakk eftir vexti, eyða ekki um efni fram og muna að rækta
garðinn sinn samviskusamlega – alla tíð.
Góður efniviður í slíkan búskap eru til dæmis gagnkvæm virðing, alúð,
aðgætni, ræktarsemi og skipulag. Með hæfilegri blöndu af dygðum eins og
tillitssemi, umburðarlyndi, þolinmæði, nægjusemi og umhyggju má stuðla
að blómlegri grósku allra þeirra gilda sem telja má ákjósanleg í farsælu
samfélagi manna.
Því allt eru þetta endurnýjanlegir eiginleikar – orkugjafar lífsgleði, þakklætis
og bjartsýni. Auðlindir sem aldrei ganga til þurrðar meðan ekki er gengið á
höfuðstól óendanlegrar uppsprettu kærleikans.
Við óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar, þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða og óskum ykkur farsældar á nýju ári.
Starfsfólk Fjarðarkaupa.