Fréttablaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 24
24 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Nokkur augnablik í lífi þjóðar
VONT – EN BARA Í SMÁSTUND Svínaflensan kom til landsins á árinu, nokkru áður en
bóluefnið barst. Fyrstir til að fá bólusetningu gegn flensunni slæmu voru heilbrigðis-
starfsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍKIÐ, VÍKIÐ Forsætisráðherra átti í miklu basli með að komast frá vinnustað sínum, Stjórnarráðinu, einn janúardaginn þegar Ísland var svo gott sem í hers höndum. Tugir lögreglumanna bægðu æstum múgnum frá svo
að ráðherrann kæmist leiðar sinnar. Þeir gátu þó ekki komið í veg fyrir að ráðherrabíllinn fengi yfir sig svolítið af eggjum og súrmjólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRAMHALD Á SÍÐU 24
Árið 2009 er sögulegt og verður skráð sem slíkt í þar til gerðar bækur. Ársins
verður minnst fyrir óeirðir í Reykjavík, umrót í pólitíkinni og Icesave-
endaleysuna auk margs annars. Sjá má bæði frið og ófrið á myndunum sem
ljósmyndarar Fréttablaðsins völdu til að sýna nokkur af augnablikum ársins.
Sársauki og örvænting eru þarna líka. Við sjáum hér sjö af þeim rúmlega
fimm þúsund myndum sem birtust í blaðinu á árinu.
HETJUDÁÐ Á annan tug hesta og knapa pompuðu niður í ískalda Reykjavíkurtjörnina í febrúar. Riðu þeir yfir ísinn til að kynna
mótshald í hestaíþróttum. Brast hann, öllum að óvörum. Fjölni Þorgeirssyni, blaðamanni Hestafrétta, leist ekki á fyrstu björgunar-
aðgerðir og skellti sér niður í vökina. Tyllti hann hófum hrossanna á lær sér svo þau fengju viðspyrnu og gætu spyrnt sér upp.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á VELLINUM Stuðningsmenn Breiðabliks öskruðu sína menn til sigurs í bikarúrslita-
leik karla í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í haust. Blikar lögðu Framara að velli
eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni og héldu heim í Kópavoginn með fyrsta stóra
titilinn í sögu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL