Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 34
30
SAMTÍÐIN
H.f. Eimskipafélag íslands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verð-
ur haldinn í fundarsalnum í húsi féiagsins í Reykjavík,
laugardaginn 1. júní 1957 og hefst kl. 1,30 e.h.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá_ starfstilhögun-
inni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni,
og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða
rekstursreikninga til 31. des. 195^ og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svör-
um stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum fé-
lagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík, dagana 27.—29 maí næstkomandi. Menn geta fengið
eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð
og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félags-
ins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir
fundinn, þ. e. eigi síðar en 19. maí 1957.
Reykjavík^ 8. janúar 1957.
STJÓRNIN.