Fréttablaðið - 29.03.2010, Blaðsíða 8
8 29. mars 2010 MÁNUDAGUR
Hjólafestingar
Stilling hf. · Sími 520 8000
www.stilling.is · stilling@stilling.is
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að við sjáum betur um bílinn þinnFeðgarnir tryggja
að allt gangi smurt
Feðgarnir Jón og Árni og félagar í smur- og smáviðgerðaþjónustu HEKLU tryggja stuttan
biðtíma. Þeir eru snöggir að skipta um perur, smyrja eða skipta um þurrkur, dekk og fleira
fyrir þig, enda verkstæðið vel tækjum búið. Láttu okkur um að smyrja bílinn þinn betur.
Smurþjónusta Rúðuþurrkur, þrif og perur Sérstök hraðþjónusta í boði Hjólbarðaþjónusta
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað er MÍR, Menningar-
tengsl Íslands og Rússlands,
gamalt um þessar mundir?
2 Hvaða íslenska hljómsveit
ætlar í samstarf við Henson
um framleiðslu á bolum og
svitaböndum?
3 Hvaða leikföngum er fólk
hvatt til að henda í ljósi dauða
tíu mánaða stúlku í Kanada
sem kafnaði út af slíku leik-
fangi? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
NÝSKÖPUN Félags- og trygginga-
málaráðuneytið hefur úthhlut-
að rúmum 30 milljónum króna í
styrki til 55 verkefna, sem flokk-
ast undir atvinnumál kvenna. Sótt
var um styrki til rúmlega 300
verkefna og hafa umsóknir aldrei
verið fleiri frá því að árlegar
styrkveitingar hófust úr sjóði til
að efla atvinnusköpun kvenna árið
1991. Meðal verkefna sem hlutu
styrk var vöruþróun og markaðs-
setning á morgunkorni og upplýs-
ingaveita um aðgengismál í þjón-
ustufyrirtækjum. - bs
Styrkir til atvinnumála kvenna:
Um 30 milljónir
til 55 verkefna
TAÍLAND, AP Abhisit Vejjajiva, for-
sætisráðherra Taílands, átti í gær
fund í beinni sjónvarpsútsendingu
með leiðtogum mótmælendahreyf-
ingar sem krefjast þess að ríkis-
stjórn hans víki.
Engin niðurstaða fékkst á fund-
inum, en frekari tilraunir til sátta
voru boðaðar á næstu dögum.
„Krafa okkar er einföld og skýr,“
sagði Veera Muksikapong, leiðtogi
mótmælenda. „Leysið upp þingið
og látið fólkið kjósa á ný.“ And-
rúmsloftið var stíft, en Abhisit
spurði á móti hvort afsögn myndi
nokkuð leysa vandann. - gb
Sáttatilraunir á fundi sem haldinn var í beinni útsendingu í Taílandi:
Enginn árangur í sjónvarpinu
FYLGST MEÐ ÚTSENDINGU Viðbrögð stjórnarandstæðings. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra vill fækka ráðu-
neytum úr tólf í níu á þessu ári og
telur raunsætt að fækka megi rík-
isstofnunum um 30-40 prósent á
næstu tveimur til þremur árum.
Þetta kom fram í ræðu hennar á
flokksstjórnarfundi Samfylking-
arinnar á laugardag. Jóhanna tal-
aði þar fyrir því að félagsmála- og
heilbrigðisráðuneyti verði sam-
einuð í nýtt velferðarráðuneyti,
landbúnaðar, sjávarútvegs- og
iðnaðarráðuneyti verði sameinuð
í atvinnuvegaráðuneyti, en sam-
göngu- og dómsmálaráðuneyti
verði lögð saman í innanríkisráðu-
neyti. Slík sameining opni á nýja
nálgun í stjórnsýslu með samein-
ingu stofnana. „Sé horft til þess
að ríkisstofnanir eru í dag um tvö
hundruð talsins og margar þeirra
sinna svipuðum verkefnum er ljóst
að ná má fram verulegri langtíma-
hagræðingu í rekstri með því að
sameina stofnanir og endurskoða
verkaskiptingu á milli þeirra. Ég
tel að það sé raunsætt markmið að
fækka ríkisstofnunum um 30-40
prósent á næstu 2-3 árum,“ sagði
Jóhanna. „Hér yrði um að ræða
umfangsmestu breytingar og upp-
stokkun sem átt hefur sér stað í
ríkisrekstri á Íslandi.“
- pg
Jóhanna Sigurðardóttir vill fækka ráðuneytum úr tólf í níu strax á þessu ári:
Raunsætt að fækka stofn-
unum ríkisins um 30-40%
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Í stjórnar-
sáttmálanum er kveðið á um fækkun
ráðuneyta með sameiningu á kjörtíma-
bilinu. Á laugardaginn sagðist ráðherra
vilja ráðast í fækkunina á þessu ári.