Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 22
16
MORGUNN
sterkar sannanir fyrir eins konar f jarskiptasambandi við ann-
an heim og þá, sem þangað eru farnir á undan okkur. Beri
Lilraunirnar og rannsóknirnar hins vegar engan árangur, sé
samt sem áður engan veginn sannað, að slikt samband sé ekki
til, heldur aðeins það, að tækin sjálf séu ekki nógu nákvæm
né réttilega tilbúin til þess að þessi orkustraumur að handan
geti haft áhrif á þau.
En báru þá þessar tilraunir nokkurn árangur? Já, segja
vísindamenn þessir. Tækin sýndu, að einhverjir kraftar eða
bylgjur verkuðu á þau á meðan frúin var í miðilsástandinu.
Hins vegar hefur enn ekki tekizt að ganga úr skugga um
það, hvaðan þessi kraftur stafaði, hvort heldur frá frúnni
sjálfri eða hann væri af öðrum uppruna. Og þá hvaðan kom-
inn? Til þess að komast að raun um það, þarf áframhaldandi
rannsóknir og margendurteknar. Og þeim þarf að beita bæði
við miðla og aðra, svo unnt sé að gera sér grein fyrir þvi, hvort
þessar sveiflur eða kraftar geri aðeins vart við sig hjá þeim,
en ekki öðru fólki. Enn fremur þarf að vinna að því að endur-
bæta og fullkomna þessi tæki.
Mér virðast þessar tilraunir við Uppsalaháskóla vera mjög
athyglisverðar. Ef þessar sérstæðu bylgjur eru fyrir liendi i
raun og veru, er engan veginn óhugsandi að unnt kynni að
reynast að breyta þeim á svipaðan hátt og útvarpsbylgjunum
í tal og tóna. Hver veit, nema vísindamönnunum takist að
lokum að smíða móttökutæki, þar sem unnt er að hlusta á
fréttir að handan og skilaboð frá liinum framliðnu á svipaðan
hátt og við hlustum nú daglega á fréttirnar i útvarpinu. Já,
hver veit?
I þessu sambandi get ég ekki stillt mig um að geta um það,
sem hinn merkilegi ritmiðill, Grace Rosher, skrifaði nýlega
ósjálfrátt á fundi með nokkrum vísindamönnum og tækni-
fræðingum. Þeir voru einmitt að spyrja um möguleika á því,
að geta náð sambandi við framliðna með einhvers konar
Ijarskiptalækjum. Segir Grace, að sá, sem hönd sinni stýri til
að svara spurningum fundarmanna, sé hinn frægi eðlisfræð-
ingur Sir William Grookes. Eftirfarandi spurningar fundar-