Barnablaðið - 01.10.1938, Qupperneq 1
BARNABLAÐIÐ
I. ARG.
Október 1938.
1. tölubl.
Aumasta barn, sem biður,
brynjar sig voða gegn.
Hér fær það velt því bjargi,
sem hetjunni er um megn.
Hvað svo sem að oss amar,
enginn því gleyma má:
inn að Guðs ástarhjarta
vor andvörp og bænir ná,
Biðjið börn!
Að biðja er bezta
iðja, sagði einu sinni
íslendingur í kvæði
sínu. Það er satt. Ekk-
ert er eins nauðsynlegt
og bænin. Ef þú, litla
barnið mitt, athugar
það sem stendur í bib-
líunni, þá sérðu alstað-
ar talað um menn og
konur, já, einnig börn,
sem hafa beðið.
Abraham, trúmaður-
inn mikli, var líka mik-
ill bænarmaður. Vegna
þess fékk hann nafnið
„vinur Guðs“. Sonur
hans, ísak að nafni,
hélt áfram að biðja
eins og Drottinn hafði
fyrirskipað föður hans.
Drottinn hafði sagt um
Abraham: Því að ég
hefi útvalið Abraham
til þess, að hann bjóði
börnum sínum eftir sig,
að þau varðveiti vegu
Drottins. 1. Mós. 18. 19.