Barnablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 3

Barnablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 3
MYNDIN HENNAR I upphafi skólaársins, sagði yfirkennarinn eitthvað undarlegt. Þau sex ár, sem Erna var búin að vera í skólanum hafði hún aldrei hevrt annað eins, að minnsta kosti ekki fvrsta skóla- daginn. Aður var f>að þannig, að kennslukon- urnar og yfirkennararnir höfðu boðið börnin velkomin, talað um hve hressandi yrði að fara í Irí og vonazt eftir góðu samstarfi á komandi skólaári. Náttúrlega hafði Löving yfirkennari talað á þessa leið einnig nú, en ekki var það samt eins og áður. ()g svo það síðasta sem hann sagði: — I.itt er það sem ég legg áherzlu á, að þessi sjöundi bekkur gerí. En það er að revkja alls ekki. Hversu niargir vkkar revkja, veit ég ekki, og ég mun ekki heldur rannsaka það mál neitt. En ég veit að það eru margir. Hér í skólanunt verða reykingar ekki Ieyfðar. Nú vitið þið þetta. Það sem þið hafizt að í heimilum ykkar, taka foreldrarnir vara á. En segið frá því heima, sem ég hef sagt í dag. Þegar þið verðið tuttugu ára gömul, munuð þið sjálf ákveða, hvað þið gerið. Leggið ykkur nú þetta á hjörtu. Oll börnin sátu hljóð. Sum horfðu niður á skólaborðið. Þannig gerði líka Elna. Hún leit aldrei upp. Henni fannst, að yfirkennarinn hefði beint orðum sínum til hennar einnar. Það var sem sé þannig, þó að það virðist ótrúlegt, að hún var orðin keðjureykingastúlka. Hún fékk þrjár krónur hjá pabba á hverri viku, í vasapen- inga, og það fór allt saman í reykingar. Þess utan hafði hún unnið sér inn dálitla peninga Henry Pantzar: stundum, og einnig þeir peningar fóru í vind- Iingana. Þegar hún stillti sér upp til að syngja með í lokasálminum: ,,Ö11 mín orð og hugsan- ir“, fannst henni hún varla geta staðið á fót- unum. — Hugsa sér, ef hún væri þegar orðin þræll revkinganna? Eiturlyfjaneytandi! — Nei, það verður þú nú aldrei af venjuleg- um reykíngum, hvíslaði rödd í hjarta hennar. Milljónir manna revkja mikið meira en þú. Henni var þungt innanbrjósts, þegar hún fvlgdist með í söngnum. Það var því líkast, sem orð sálmsins beindust að henni einni, fannst henni. Hún fór einsömul út úr skólastofunni, yfir ganginn og niður stigann, út á skólalóðina. Gekk síðan götuna áfram, mjög hægt, án þess að hugsa um hvert leiðin lá, en í djúpum hug- leiðingum. — Tóbak, sígarettur, reykingar, eiturlyf, eiturlvfjaneyzla, sjúkdómar. Án samhengis liðu orðin í gegnum huga hennar. Hún átti erfitt með að hugsa skýrt og greinilega. En smátt og smátt glæddist hugsun- in og hún minntist, hvernig hún hafði byrjað að reykja. En hvernig hún átti að fara að því að hætta, það vissi hún ekki. Eitt var öruggt: Hún þráði að hætta að reykja sígarettur. Orð yfirkennarans brenndu hana. Hún var hrædd. Hún gekk ósjálfrátt heimleiðis, án þess að hugsa um það. Allt í einu var hún komin heim. Hægt og í þungum þönkum gekk hún upp á 3

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.