Barnablaðið - 01.09.1975, Síða 9

Barnablaðið - 01.09.1975, Síða 9
urðartilfinningu: „Ég ætla að gefa honum marg- litan kyrtil,“ hugsaði pabbi hans. Litirnir skyldu vera hinir allra fegurstu, sem hægt væri að finna á einni flík. Þegar nokkrir dagar höfðu liðið, kallaði Jak- ob á son sinn og mælti: „Jósef, elsku drengurinn minn, þú hefur al- drei hryggt mig, alltaf verið hlýðinn og eftir- látur við mig. Þú hefur alltaf komið á bæna- staðinn með mér. Það er meira en ég get sagt um aðra syni mína. Hérna er ég með litla gjöf til þín. Mér fannst Guð hvísla þessu að mér, þegar við stóðum tveir einir við bæna-altarið í fyrri viku, og þú spurðir mig eftir hvað blóð lambsins þyddi á altarinu. Sonur minn. Guð tekur eftir því, hvernig við hugsum, hvernig við tölum, og hvernig við breytum.“ Um leið rétti faðir hans honum fallega kyrtil- inn. Jósef hafði aldrei á ævi sinni séð jafn fal- legan kyrtil. Hann horfði ýmist á kyrtilinn eða pabba sinn. Síðan segir hann og röddin titraði svo- lítið: „Þakka þér fyrir gjöfina, elsku pabbi minn.“ Síðan spennti hann greipar og leit upp til him- ins, þar sem Guð býr og sagði: „Góði Guð, ég þakka þér fyrir þennan und- urfagra kyrtil og að þú hefur gefið mér góðan pabba.“ (1. Mós. 37, 3). A.E. fórum inn, og Tryggur með; en þegar við báð- um húsbændurna að taka hann af okkur, — því í varpinu mætti hann ekki vera, — fór hann út, og er ekki um það hugsað; en þegar við ætl- uðum á stað aftur, fannst hvolpurinn hvergi ■— þó hans væri víða leitað — þar til við komum að bátnum, þá sjáum við að hann er kominn aft- ur í skut og kúrir þar. Við köllum því í hann og gegnir hann því ekki en liggur sem dauður væri. Nú var hann tekinn og lokaður inni þar til við vorum komnir úr augsýn; en eftir þetta hafði hann það fyrir vana, þegar hann var uppi og sá bát koma úr eyjunni, að hann var ætíð kominn er báturinn lenti, þó langt væri frá því er hann átti heima; hann var þá ekki látin vera lengur en þörf þótti og ekki fluttur fyrr en fugl var farinn að setjast. En vorið 1907 bar svo til um miðjan varptímann að við bræður vorum á landi að laga tóftir er reka átti inn í til fráfærna, og er leið að hádegi kemur drengur einn að leita kinda, og er Tryggur með honum, en þegar hann sér okkur, þá var hann ekki lengi að hendast til okkar, og fékk drengurinn hann ómögulega með sér. Við vorum nú í vandræðum með hann, því að við þurftum heim um kvöldið, en ekki mátti hann vera með; við hugsuðum nú, að hann mundi fara til bæjar, er við værum farnir, og létum það gott heita. Okkur gaf byr heim, og settum við strax upp segl; en þegar við vorum komnir fáa faðma undan landi, lítum við aftur, og sáum þá að Trvggur fylgdi á sundi. Nú var ekki um ann- að að gera en taka hann upp í bátinn og hafa hann með heim; leist flestum lakar á, er Trygg- ur var með; en við lofuðum að flytja hann aftur, ef við gætum ekki kennt honum að bera tilhlýði- lega virðingu fyrir æðarfuglinum, en fyr ekki. En Tryggur var námfús, og tókst það fljótt hvað æðarfuglinn snerti, en lengi var hann að læra að elska kríuna; hún var svo vond við hann, og honum þótti gaman að leika sér með ungana hennar, en þeir þoldu ekki hans leiki. Samt lagað- ist þetta líka, og það svo, að hann var aldrei fluttur héðan aftur vegna fuglanna, og að lokum passaði enginn betur en hann að ganga úr vegi fyrir þeim, og bar það oft við, er fugl var að setjast og við vorum að ganga um eyjuna, að hann gerði okkur aðvart ef hann sá hjón, að ganga úr vegi fyrir þeim. Tryggur fékk nú aldrei að fara á land, nema þegar hans þurfti þar, og var það helst í leitum á haustin, en þá var líka oft gaman að glögg- skyggni hans, og langar okkur að nefna hér eitt dæmi. Þegar komið er úr leitunum, er féð strax flutt út í eyjuna; það er rekið ofan í kletta, sem y

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.