Barnablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 13

Barnablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 13
\ SER HEYRA JESÚS LIFIR Eins og lesendur Barnablaðsins kannski muna, hlutu tveir lesendur blaðsins verðlaun fyrir rétta lausn á getraun. Það voru þau Guðni Heiðar Guðnason, Kirkjulækjarkoti í Fljóts- hlíð og Margrét Sigurðardóttir, Hjalteyri. — Margrét þakkar fyrir verðlaunin með meðfylgj- andi bréfi: Hún sendir líka litla teikningu. Margrét segir: Kæra Barnablað: Ég þakka ykkur kærlega fyrir bókina: Bláklukkur. Mér þykir bókin skemmtileg, ég hef gaman af henni. Guð blessi alla þá, sem við Barnablaðið starfa. Sendi ykk- ur mynd með. — Með beztu kveðju. Margrét Sigurðardóttir. Ath. Bókin sem Margrét fékk í verðlaun, var fallega árituð. Myndin sem hún sendi er Jesús lifir. Ritstj. Sauðárkróki, 3. júlí 1975. Kæra Barnablað! Ég ætla að senda þér eftirfarandi frásögu: MINNISSTÆTT ATVIK Ég var hjá hesthúsunum og fékk að fara á bak. Hesturinn var orðinn illur því að þetta var áttunda ferðin hans. Það voru aðrir krakk- ar, sem höfðu farið á bak. Ferðin gekk vel að vegamótunum, en á heimleiðinni fór hesturinn að ganga greiðar. Þegar við áttum skammt heim að hesthúsunum datt ég nærri því af baki. Ég varð logandi hrædd og greip í hinn hestinn, því að maðurinn sem átti hestinn reið við hliðina á okkur, en ég gat fljótlega reist mig við. Seinna sagði ein vinkona mín, að það vit- lausasta, sem ég hefði gert, væri að grípa í hinn hestinn. — Bless. Rósa E. Róarsd. Svo verðum við að draga nokkra úr syrp- unni, sem óska eftir bréfasambandi: Sigurósk R. Aðalsteinsdóttir, Grundarstíg 22, Flateyri. Ágústa K. Bragadóttir, Njarðvíkurbraut 13, Innri-Njarðvík. Júlía Karlsdóttir, Vallholti 22, Ólafsvík (á aldr- inum 15—18 ára). Ingibjörg R. Grétarsdóttir, Syðri-Reykjum, Biskupstungum, Árnessýslu. Böðvar F. Sigurðsson, Brúnastöðum, Lýtings- staðahreppi, Skagafirði (10—12 ára). Sigríður K. Jónsdóttir, Hólavegi 36, Sauðár- króki (á aldrinum 11—12 ára). Helga Jónsdóttir, Hólastíg 6, Bolungarvík, N- ísafjarðarsýslu (aldur 11—12 ára). Arnþór Jónsson, Grænuhlíð, Hjaltastaðaþinghá (aldur 12—14 ára). Sigríkur Jónsson, Grænuhlíð, Hjaltastaðaþing- há (aldur 8—11 ára). 13

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.