Barnablaðið - 01.09.1975, Side 15
GUÐLEG SÝN
LÍTILLAR STÚLKU
Lítil stúlka veiktist af alvarlegum augnsjúk-
dómi. Sjúkdómurinn ágerðist þar til hún missti
sjónina á báðum augum og varð alblind. Eftir
þetta varð hún rúmliggjandi, enda hafði þá
annar sjúkdómur slegið sér að þeim sem fyrir
var. Þegar móðir litlu mærinnar var að sinna
eldhúsverkum og var frammi við, lét hún dótt-
ur sína hafa áhald til þess að slá í þilið fyrir of-
an rúmið sitt, þegar hún þurfti á aðstoð móður-
innar að halda, sem oft var.
Nú var það dag einn, þegar mamma hennar
var að sinna búverkum sínum, þá heyrir hún
að dóttirin bankar í þilið, og miklu ákafar en
venjulega. Móðirin flýtir sér inn til sjúklings-
ins. Óðara hún opnar dyrnar að herbergi dótt-
ur sinnar, kallar barnið með áhuga miklum:
„Mamma, mamma mín, nú hef ég fengið
sjónina aftur. Sjáðu mamma, herbergið er fullt
af himneskum englum, sem eru komnir að
sækja mig og flytja mig heim til himins. Ó,
mamma, sérðu ekki litlu systur mína? Hún er
þarna líka, með englunum. Sérðu hana ekki?
Og sjáðu, þarna er Jesús líka. Hann réttir út
hendurnar og breiðir út faðminn. Ó, hve hann,
frelsarinn, er yndislegur.“ Og nú var eins og
hún vildi flýta sér að segja frá einhverju nýju,
sem altók huga hennar, og hóf máls: „Ó,
mamma, mamma.“ En hún hafði ekki mátt til
að segja meira, því að hún hneig niður á kodd-
ann og var örend.
Þegar faðir litlu stúlkunnar kom heim frá
daglaunavinnu sinni um kvöldið, sagði kona
hans við hann: „Nú eigum við orðið tvö börn
í himninum. Jesús og englar hans sóttu elsku
litlu stúlkuna okkar í dag.“
15