Barnablaðið - 01.09.1975, Qupperneq 18

Barnablaðið - 01.09.1975, Qupperneq 18
HÆTTULEGUR HUÐARVEGUR Lárus var aðeins níu ára. En honum fannst sjálfum að hann væri orðinn stóri karlinn. Hann hafði þegar gengið tvö ár í skóla og kunni vel að lesa. Undrandi hugsaði hann stundum, hvað mamma og pabbi treystu honum lítið í þeim hlutum, sem hann sjálfur var viss um að hann gæti gert. Amma hans átti heima langt frá heimili Lár- usar. Amma hans var heimsins bezta amma. Hann heimsótti hana eins oft og hann gat. Pað tók Lárus einn tíma og rúmlega það að ganga til ömmu sinnar. En það var til hliðarvegur, erl foreldrar hans höfðu bannað honum að fara hann. Það var nú ekki svo undarlegt, því að hann lá yfir mýrarfen. Lárus þekkti þessa leið ekki eins vel og hann hélt. Einn dag fóru foreldrar Lárusar að heim- an, en hann vildi ekki fara með þeim. Hann ætlaði að heimsækja ömmu sína. Og nú hafði hann hug á að styíta sér leið.- Enginn mundi AÐ LÍKJAST KRISTI Á að reyna að læra að líkjast honum, sem lifði til að vitna um æðsta sannleíkann. Bera kærleiksgeisla að brostnum vonum, bæta úr hvers manns þörfum, það ávallt gjörði hann. Reyna að tendra ljósin um langar, dimmar nætur, svo lýsa vel þau megi á brautu sérhvers manns. Og þegar það er einhver á götunni, sem grætur, þá grætur sjálfur Jesús. — Hver þerrar tárin hans? Guðrún GuBmundsdóttir. geta hindrað hann. Svo gæti hann sagt pabba og mömmu hversu létt það væri að fara þessa leið, ef það væri nógu hugaður drengur, sem legði af stað. Það er nú freistandi að fara þessa leið, þegar það getur stytt tímann um helming, hafði hann heyrt pabba sinn og aðra segja. Hugsa sér, aðeins hálftími að komast til ömmu. Lárus gekk ákveðið en hægt, þegar hann kom að mýrarfeninu. Hann stökk þúfu af þúfu, því hann vildi ekki koma blautur til ömmu. Klukkan var nærri fjögur, þegar hann lagði af stað. Hann hafði lesið skólabækurnar áður, því að hann vildi fyrir alla muni geta svarað, þegar hann yrði spurður í skólanum. Fyrst gekk allt vel. Hann sá hvernig vatnið skvettist milli þúfnanna. Hann hafði heyrt, að það væri hægt að sökkva alveg upp að mitti. Og ef illa færi gat maður alveg horfið. Það var svolítið erfitt að fara hægt. Honum fannst hann vera orðinn alveg öruggur og fór því hraðar. Nú gekk það ágætlega. Bráðum var hann hjá ömmu að borða pönnukökur, hugsaði hann. Nú gætti hann sín ekki eins og skyldi. Hann stökk þúfu af þúfu, en aðeins nokkrar sekúnd- ur. Allt í einu fann hann hvernig ein þúfan lét undan. Þá missti hann jafnvægið -og sökk nið- ur í leðjuna. En þegar hann reyndi að fá fót- festu með hinum fætinum, sökk hann bara dýpra. Hann náði handfestu á næstu þúfu og gat haldið sér uppi. Hann barðist í hálftíma við að ná sér upp, 18

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.