Barnablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 9

Barnablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 9
Svona gerum við... \ þetta sælgæti þarft þú ferska ávexti, til dæmis; Jarðarber, kiví, banana, mandarínubáta, epla- eða perubita. Þú þarft líka suðusúkkulaði eða hjúpsúkkulaði, sem þarf að bræða (Það er gott að fá aðstoð hjá pabba eða mömmu við að bræða súkkulaðið). Fyrst hlutar þú ávextina niður í bita og stingur svo tannstönglum í bitana, þá er svo auðvelt að dýfa þeim í súkkulaði bráðina. Þegar þú ert búin að húða bitana skaltu setja þá á bökunarpappír á meðan súkkulaðið er að harðna. Þetta er tilvalið helgarsælgæti og gott þegar fjölskyldan vill gera eitthvað skemmtilegt saman. Ef það eru til afgangar af gosi er alveg upplagt að hella þeim í ísmolaform og búa til frostpinna úr þeim. Verði ykkur að góðu Ponsa Stafarugl Getur þú fundið út hvað á að standa hérna? Lausnin er á bls. 15. AÐÞ ORBGRA GIS ÐA ÝHÐLA Hvað heldur Guð um þig? Pétur lá í rúminu sínu og allt í einu segir hann við mömmu sína: „Mamma, nú heldur Guð að ég sé dáinn.“ „Hvernig stendur á, að þú talar svona,“ svarar mamma hans. „Guð sér að þú ert alveg bráðlifandi.“ „Nei, mamma mín, hann veit ekkert um mig. Hann hefur ekkert heyrt frá mér lengi, lengi. Það er komin meira en vika síðan ég hef beðið til hans,“ svaraði Pétur. Hvað er orðið langt síðan Guð hefur heyrt frá þér? Hér eru skilaboð til þín úr Biblíunni „Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum" Þetta stendur í Davíðssálmi 91,11- Bamablaðið 9

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.