Barnablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 18
hví ofsækir þú mig. En hann
sagði, Hver ertu herra ? Þá var
svarað: Eg er Jesús sem þú
ofsækir." Krakkarnir sitja
grafkyrr og hlusta. „Hann
fékk að heyra í Jesú/' hvíslar
Fanney, „hugsið ykkur bara,
hann fékk að heyra í Jesú."
Krakkarnir horfa hvert á
annað og verða hátíðleg á
svipinn, pabbi kinkar kolli:
„Þetta varð til þess að Sál
trúði því að Jesús væri
Messías, frelsarinn sem
hann hafði beðið eftir, en nú
ætla ég að geyma afganginn
af sögunni þangað til
seinna." Pabbi stendur á
fætur og er greinilega að
meina það sem hann segir
um að geyma afganginn af
sögunni. En Kata ætlar ekki
að láta hann sleppa svona
vel: „Æ nei ekki hætta,
segðu okkur hvað gerðist
svo - gerðu það." Og Stebbi
er alveg sammála systur
sinni: „Já gerðu það?" En
pabbi hlær bara og segir;
„Þið fáið að heyra meira
næst, því við getum lært
margt af þessari sögu."
"Lært, ha"? Kata er hissa:
„hvað getum við lært af
sögunni um Sál?" Fanney er
hinsvegar með á nótunum
enda er hún alveg að verða
tólf ára og farin að læra
útlensku í skólanum. „Hva,
veistu það ekki, við getum
lært að Guð svarar bænum,"
segir hún og er svolítið
montin. „Já það," segir Kata,
„hann hefur aldeilis svarað
bænum lærisveinanna í
Damaskus". „Já," segir
Pabbi, "Guð svaraði bænum
þeirra alveg eins og hann
gerir enn í dag", hann
knúsar biblíuspæjarana sína
svolítið. Þegar þau hafa
hlegið og ærslast um stund
segir pabbi: „Það er svo gott
að vita að Guð hlustar á allar
bænir okkar og svarar þeim
svo eins og okkur er fyrir
bestu. En nú skulum við
biðja saman áður en þið
farið að leika ykkur."
„Jahá", hrópar Stebbi: „við
skulum biðja". Og áður en
Biblíuspæjararnir gera
nokkuð annað þá setjast þau
öll niður, spenna greipar og
tala við Guð.
Framhald í næsta blaði.
Myndagáta
Pétur var nýfluttur í bæinn
og ætlaði að hitta vini
sína Sigga og Gunna, en
hann vissi ekki hvar þeir
ættu heima svo hann
hringdi í þá og fékk
þessar leiðbeiningar:
Siggi sagðist eiga heima
í húsi sem ekki væri með
loftnetsstöng og væri
meira en tvær hæðir, ekki
með gosbrunn og
grenitrjám í garðinum.
Gunni sagðist eiga heima
í húsi sem væri: ein hæð,
með tveim gluggum, í
garðinum væri fáni og
runnagirðing.
Gangi þér vel
að finna húsin,
Guðbjartur
Lausnin er á bls. 15
Bamablaðið
18