Barnablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 22
Ur ruslatunnunni
Það er hægt að föndra margt
skemmtilegt úr hlutum sem oftast
fara beint í ruslatunnuna.
Næst býrð þú til glugga og hurðir
á fernuna þína, ef þig langar til
að geta opnað og lokað hurðum og
gluggum þá verður þú að sleppa að
klippa eina hliðina, svona: -------
Svona getur þu buið til
hús úr drykkjarfernum:
Þú finnur þér stóra eða litla
drykkjarfernu, þværð hana og lætur
hana þorna vel, til dæmis á hvolfi
á ofninum. Síðan getur þú byrjað á
húsinu. Fyrst þarftu að ákveða
hvort þú vilt búa til hús úr fernu
sem liggur eða stendur. Síðan
getur þú búið til þak á húsið þitt
eins og myndin sýnir:
*■
Síðan getur þú málað húsið þitt eða límt utan á
það efni eða gjafapappír. Ef þú vilt gera húsið
enn fallegra er hægt að skera toppinn af fernunni
og búa til þak úr bylgjupappa eða kartoni. Þú
getur búið til sveitabæ, blokkir, einbýlishús
eða hvað sem þig langar til.
Svona er hægt að búa til
körfu úr drykkjarfernu:
Klipptu körfuna út eins og myndin
sýnir og heftaðu haldið saman.
Síðan getur þú skreytt körfuna að
vild, málað hana eða límt utan á
hana efni eða pappír.
22
Bamablaðið