Barnablaðið - 01.02.1995, Síða 19
Einu sinni var...
úr gömlum Barnablöðum
Biðjið börn
/
Ur fyrsta
Barnablaðinu
árið 1938
ð biðja er besta
iðja, sagði einu
sinni Islend-
ingur í kvæði sínu. Það er
satt.
Ekkert er eins
nauðsynlegt og bænin. Ef
þú, litla barnið mitt,
athugar það sem stendur
í Biblíunni, þá sérðu
allsstaðar talað um menn
og konur , já og einnig
börn, sem hafa beðið.
Abraham, trú-
maðurinn mikli, var líka
mikill bænamaður. Vegna
þess fékk hann viður-
nefnið „vinur Guðs/7.
Sonur hans, ísak að nafni,
hélt áfram að biðja eins
og Drottinn hafði
fyrirskipað föður hans.
Drottinn hafði sagt um
Abraham: því að ég hef
útvalið Abraham til þess
að hann bjóði börnum
sínum eftir sig, að þau
varðveiti vegu Drottins
(1. Mósebók 18,19) Þú
hefur heyrt um Hönnu,
sem var móðir spá-
mannsins Samúels,
einnig hún bað mikið til
Drottins og vegna þess
varð sonur hennar mikill
Guðsmaður og leiðtogi
þjóðar sinnar.
Jesús sjálfur bað mikið til
föður síns, það sjáum við
í Guðspjöllunum og
þegar hann varð fulltíða
maður og kom fram
opinberlega, kenndi
hann lærisveinum sínum
að biðja.
Þú kannski spyrð:
Hvers vegna eigum við
að biðja? Nægir það
okkur ekki að borða, sofa,
að starfa o.s.frv. Bænin er
andlegt samband við
Guð og hjálpræði hans
fyrir Jesúm Krist. Þú
öðlast á þann hátt eðli
Guðs og samfélag við son
hans Jesúm Krist. Þú
þroskast þannig og
verður fullkominn eins
og andlegur maður.
Bænin breytir hinu vonda
hjarta mannsins og mýkir
hið harða hugarfar hans,
Þetta muntu skilja betur
á vegi bænarinnar.
Byrjaðu nú að biðja,
þegar þú ert búin að lesa
þessa litlu grein um
bænina, þá getur þú líka
öðlast gjafir Guðs og frá
honum koma aðeins
góðar gjafir, því að hann
er faðir okkar allra. Herra
Jesús, kenn þú okkur að
biðja.
Ykkar einlægur vinur,
Nils Ramselius
Bamablaðið
19