Barnablaðið - 01.12.1996, Síða 2

Barnablaðið - 01.12.1996, Síða 2
Barnablaðið er gefið út af Hvítasunnukirkjunni á Akureyri, pósthólf 208 602 Akureyri, sími 461- 2220, myndsendir 461-2231. Ritstjórar Útlitshönnuður Teiknari Arnar Hjörtur Yngvason Birgisson Gjaldkeri Auglýsingastjóri gmm Ásdís Árni Jóhannsdóttir Vilmundars. Framkvæmdastjóri: Vörður Traustason. Barnablaðið kemur út sex sinnum á ári (í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember). Blaðið er selt í áskrift á 1.850 kr. (1.750 kr. fyrir þá sem greiða með kreditkorti) og í lausasölu á 350 kr. Askriftartímabil er frá janúar til desember sama ár. Uppsögn miðast við áramót. Vinsamlega tilkynnið ef breyting verður á heimilisfangi eða áskrift. Þetta tölublað er gefið út í 1000 eintökum. Um prentvinnslu sér Ásprent/POB hf. Barnablaðið hefur komið út síðan 1938. í upphafí... Á mínu heimili eru hefðir í heiðri haldnar um jólin, við förum í kirkju, borðum hátíðarmáltíð og lesum jólaguðspjallið í öðrum kafla Lúkasar áður en gjafirnar eru opnaðar. Fjölskyldan eyðir tímanum saman og nýtur jólanna með vinum og ættingjum. Barnablaðið er líka í hátíðarskapi, það geymir jólasögur og jólaefni en við höfum í pokahorninu nokkrar breytingar eins og þú sérð þegar blaðið er skoðað. Börn á aldrinum eins til fimm ára hafa fengið eina opnu fyrir sig, þú finnur hana á bls. 4-5. sex, sjö og átta ára börnin eiga opnuna á bls. 6-7, níu, tíu, ellefu og tólf ára krakkarnir eiga bls. 8-9. Fullorðna fólkið fær opnu fyrir sig sem verður notuð fyrir foreldrasíðuna og barnastarfsmenn. Við höfum líka hafið undirbúning að unglingasíðum og ég vona að þær verði að veruleika sem allra fyrst. Við sem störfum að blaðinu vonum að þetta verði til þess að allir fái efni við sitt hæfi og Barnablaðið verði sannkallað fjölskyldublað. Við sem vinnum að blaðinu óskum þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla. BRANDARAR Valt Disney? Nei, honum var hrint! Hvað er hámark varkárninnar? Snigill sem bremsar í beygju! Hvað stóð á hurðinni hjá tannlækninum á Mars? „Lokað vegna jarðarfarar!11 Til hvers fór fíllinn í annað sinn yfir götuna? Til þess að tína upp krömdu kjúklingana! Hvað fann skrímslið sér að borða eftirtímann hjá tannlækninum? Tannlækninn! Hvað sagði rollan við hrútinn? Hittumst í kjötbúðinni! Hvað eru allir hafnfirðingarnir að gera niður við tjörn? Láta endurskoða skattskýrslurnar! Eiríkur Heiðar Nílsson 10 ára Efnisyfírlit 3 NT Biblíufræðslan m Efni fyrir 1 til 5 ára börn Hreiðrið Verkefni og litabók Efni fyrir 6 til 8 ára börn Jólabæn Tedda Verkefni 8-9 Efni fyrir 9 til 12 ára börn Vissir þú þetta um fæðingu Jesú? 10 Pósthólfið og viðtal 11 Pétur hringir til Guðs 12-13 Annað en sýnist 14-15 Drama og jólaleikur 16 Soja kemst í skóla 17 Jólaföndur 18-19 Sögumaðurinn 20 Kaffibaunirnar 21 Jólaföndur 22-23 Framhaldssagan Fjörkálfarnir 2 Bamablaðið

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.