Barnablaðið - 01.12.1996, Síða 6

Barnablaðið - 01.12.1996, Síða 6
Jólabæn Tedda Það var í vikunni fyrir jólin, Teddi var að biðja bænirnar sínar og að endingu sagði hann „kæri, góði Guð, má ég fá öll leikföngin sem ég bað um, amen!" Síðan opnaði Teddi augun, leit á pabba sinn og spurði: „Var þetta ekki góð bæn?" Pabbi svaraði: „Þetta var bæn lítils drengs en nú langar mig að vita hvort þú getur æft þig fram að jólum í að biðja sannrar jólabænar." Allan næsta dag var Teddi að hugsa um jólabænina. Þennan dag heyrði hann líka sönginn um „jólabjöllurnar" og þá hélt hann að nú vissi hann svarið við spurningu pabba. Um kvöldið bað hann Guð um að fá að aka á sleða með hesti fyrir en pabbi hristi höfuðið. Þetta var ekki sönn jólabæn. Daginn eftir sá Teddi stórt jólatré og um kvöldið bað hann Guð að gefa sér stærsta og fallegasta jólatréð í heiminum, aftur hristi pabbi höfuðið. Tedda gekk ekki vel að biðja í anda jólanna. Næsta dag heyrði Teddi að spáð var snjókomu um jólin og þá um kvöldið bað hann um snjó, en pabbi hét áfram að hrista höfuðið. Tveimur dögum fyrir jól kom pabbi heim með gæsina sem átti að vera í jólamatinn og um kvöldið þakkaði Teddi Guði fyrir að hafa gefið sér góðan jólamat. Pabbi hristi ekki höfuðið og það gladdi Tedd. „Teddi 6................... minn," sagði pabbi, „Þetta var betri bæn vegna þess að þú þakkaðir Guði fyrir jólagæsina í stað þess að biðja um eitthvaðfyrir sjálfan þig, en jólabæn er meira en bara bæn sem snertir sjálfan þig." Daginn eftir var þorláksmessa og þar með síðasta tækifærið að hugsa um jólabænina. Þegar Teddi var kominn í náttfötin sín stóð hann um stund við gluggann sinn og horfði á uppljómuð húsin hinu megin við götuna. „A morgun verða jólin haldin hátíðleg í öllum þessum húsum, „hugsaði Teddi. „Og um allan heim er fólk að undirbúa jólin núna, bæði í heitu löndunum og köldu löndunum. ✓ / A Islandi og í Afríku, á skipum út á sjó og upp í fjallaþorpum í Sviss, allsstaðar koma jólin." Teddi hugsaði um allt þetta ólíka fólk sem væri að hugsa um Jesú, frelsara mannanna. Síðan lokaði Teddi augunum og bað: „Kæri Guð, blessaðu alla sem eiga bágt og hjálpaðu þeim. Einnig alla aðra á þessari jörð, í Jesú nafni, amen." Pabbi kyssti Tedda góða nótt um leið og hann sagði: „Þetta var sönn jólabæn." Teddi sofnaði glaður, nú vissi hann um hvað jólin snérust. Bamabloðið

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.