Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1886, Qupperneq 2

Sameiningin - 01.07.1886, Qupperneq 2
—66— um í Jerúsalem til að ganga út í dauöann, þá ílutti hann bœn- ina einstaklegu, sem er efni 17. kap. í Jóhannesar guöspjalli, þar sem hann biör fyrir hinum fámenna lærisveina-húpi sínum, er þá var meS honum, og eins fyrir öllum hinum, sem seinna myndi gjörast lærisveinar hans víösvegar um heim allt svo lengi er heimr stœSi. I þeirri bœn koma fyrir þessi dýrmætu orS: „svo aS allir sé eitt“. Hugsanin um sameining hins sundraSa mann- kyns, hinna tvístruöu jaröar-barna, er ríkari en allt annaS í huga frelsarans á þeirri hátíölegu stund og hiín er fléttuS saman viS allan síSari hluta bœnarinnar og kapitulans. Frelsarinn vissi vel, hvaS var heimsins mesta mein : þaö aö mennirnir voru sundr tættir, hatandi hver annan, berandi banaspjót hver aS annars hjarta. Og hann vissi, aö þetta myndi framvegis verSa hiS mesta mein mannanna, einnig þar sem myndaör væri aö nafninu kristinn söfnuör. Hann skar þaS í hjartaS aS hugsa til þess, aS svo og svo margir af sínum lærisveinum, þaS er aS segja : fólki meö kristnu nafni, myndi verSa til þess aS halda viS sama kærleiksleysinu, sama hatrinu, sama einingarleysinu, eins og svo ríkt var grundvallaö hér í mannheimi áSr en hann í eigin persónu sinni birti mönnum djúp hins guödómlega kærleika. þaS vakti fyrir honum heiSindómrinn í sinni eigin kirkju á ó- komnum öldum, sundrung þeirra, sem saman ætti aS vera, skortr á kærleika meSal þeirra, er kallaSir væri sérstaklega til aS elska hver annan, heift og hefndargirni í því félagi, sem myndaöist á grundvelli hins himneska kærleika, í því félagi, sem héldi uppi krossmerki hans, er lét lífiS til þess aS allir fengi sameinazt í hjarta guös. Hann var einmitt í heiminn kominn til þess aS gjöra alla menn aö börnum guSs og rífa niör „miövegg giröingar- innar, fjandsltapinn" (Efes. 2, 14), slétta út djúpið, sem syndin hafði staSfest bæSi milli inannsins hjarta og guSs hjarta og eins milli einstakra manna eða mannflokka. HvaS gat þá veriS sár- ari tilhugsan fyrir hann heldr en þaS, aS fjöldi fólks gengi í orði kveSnu sér á hönd, gengi í kristinn söfnuð, en héldi eins fyrir því áfram aS vinna hver á móti öSrum, særa hver annan, eyði- leggja hver annan, fœra hjörtun lengra og lengra burtu hvert frá öðru, víkka fjandskapar-djúpiS inanna á meðal æ meir og meir ? Ut af þessari tilhugsan biSr Jesús svo heitt í öllum síðari hluta hinnar áminnztu bœnar sinnar um það, að allir sínir lærisveinar megi verSa eitt. þaS er sorglegt aS hugsa um heim- inn nn endrlausnara algjiirlega sundraSan í andlegu tilliti. En

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.