Sameiningin - 01.07.1886, Side 7
•71
höggviS og síðan brennt, og svo veit hann, að eftir að það í þessu
ástandi hefr verið flutt á byggingar-stöðvarnar hefir það verið
slökkt og því næst haft til að líma múrsteinana í byggingunni
saman. Hann getr enn frernr bent á staðinn, þar sem tré þau,
er þurftu til hússins, hafa verið felld. Hann fylgir þeim í huganum
til sögunar-mylnunnar, þar sem þeim hefir veriö flett í bjálka og
borð áðr en þau komust á sínar nú verandi stöðvar. Og loks sér
hann vinnumenn, smiöi, múrara, timbrmenn, og athugar með
eigin augum, hvernig þeir—og engir aðrir en þeir—koma upp
byggingunni af efni því, sem er fyrir höndum. Manninn, sem
gjört hfir teikninguna til byggingarinnar og sem sameinar alla
liina ýmis konar krafta í eitt, sjálfan byggingar-meistarann, sér
hann ekki. Ef nú þessi maðr ályktaði af því, sem hann þannig
hefir séð með eigin augum, að enginn byggingar-meistari væri
til, að tilvera hans væri ekki annað en draumórar hjátrúarfullr-
ar og óupplýstrar tíðar, en hlyti að hverfa eins og dögg fyrir
sólu fyrir upplýsing vorra tíma, ef hann, þá er hann ætti að
gjöra grein fyrir hinni kynlegu samverkan hinna mörgu ýmis
konar krafta, segði, að þessi samverkan væri tilviljan og ekk i
annað, þá hefðum vér þarna mynd af mörgum manni, sem á
vorum dögum talar með regingi miklum í nafni menntunar þess-
arar aldar, vísindanna og sannleikans, lætr blinda tilviljun hafa
myndað heiminn, og neitar þar af leiðanda tilveru guðs. Oss er
það fullkunnugt, að þetta er ekki annaö en mjög einfaldr barna-
lærdómr, en það er einmitt á honum, sem oss ríðr fremr en öllu
öðru. I þessum einfalda barnalærdómi er langtum meiri sann-
leikr en því, sem vor öld kallar speki.
D. G. Monrad: „Úr heimi bœnarinnar".
««<----♦- • — — M------»»-
LEXÍIIR FYRIU SFNXUWAGSSKÓLAXX.
---°I>0^^>0<0-
J>RIÐJI ÁRSFJÓRÐUNGR 1886.
Sunnud. 4. Júlí: Jesús og blindi maðrinn. .(Jóh. 9, 1-17).
11. Júlí: Jesús er góði hirðirinn .... (Jóh. 10,1-18).
18. Júlí: Dauði Lazarusar..........(Jóh. 11,1-16).
25. Júlí: Uppvakning Lazarusar.. ..(Jóh. 11,20-27
og 39-44).
1. Ag.: Jesú er sómi sýndr.... (Jóh. 12,1-16).
8. Ág.: Heiðnir menn leita Jesú. (Jóh. 12, 20-36).
L