Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1886, Page 8

Sameiningin - 01.07.1886, Page 8
t —72— Sunnud. 15. Ag.: Jesús kennir auðmýkt.. . .(Jóh. 13, 1-17). ---- 22. Ág.: ViSvörun til Júdasar og Pétrs......(Jóh. 13, 21-38). ---- 29. Ág.: Jesús huggar lærisveinasína(Jóh. 14,1-14). ——- 5. Sept.: Jesús hinn sanni vínviðr.. .(Jóh. 15,1-16). ---- 12. Sept.: Sending andans..............(Jóh. 16, 5-20). —— 19. Sept.: Jesús biðr fyrir lærisveinum sínum.. (Jóh. 17, 1-3 og 11-21). ---- 26. Sept.: Yfirlit. LEXÍURNAR FYRIR LÍFIÐ. Lækning hins blind-fœdda manns, athugasemdir þeirra, er við staddir voru, út af því kraftaverki, og dómr Farísea um Jesúm út af því, er 1. lexía hins þriðja ársfjórðungs.—Lexíurnar eru enn allar í Jóhannesar guðspjalli.—þegar lærisveinar Jesú sáu hinn blinda ölmusumann, sem aldrei hafði litið dagsljósið á æíi sinni, kom þeim til hugar, að böl hans væri yfir hann komið annaðhvort sökum eigin synda hans eða foreldra hans. Jesús neitaði því að svo væri, en tók fram, að þetta væri orðið, svo að guðs verk yrði á honum opinber. þó Jesús neiti þessu, þá neitar hann því þar með engan veginn, að eigin syndir eða foreldr&nna syndir leiði eymd og bölvan yfir margan mann. „ Eg em vandlætissamr guð “, segir drottinn um leið og hann gefr fólki sínu lögmálið, “ sem liegni misgiörðir feðranna á börnunum í þriðja og fjórða lið, ú þeim, sem mig hata ” (2. Mós. 20, 5). Margir komast í eymd, andlega og líkamlega eymd, fyrir þann syndaskóla, sem þeir hafa í gengið á barnsaldri í foreldra-húsum. Gæt þess þá, faðir og móðir, að það, sem börnin þín sjá og heyra til þín daglega, verði ekki til þess að þau. síðar meir lendi í eymd og voða. En eins leiðir líka eigin synd iðulega böl og bágindi yfir manninn þegar í þessu lífi. Vér þurfum ekki að vitna til dœmisögunnar um hinn týnda son (Lúk. 15) eða á neitt annað í guðs orði þessu til sönn- unar, því slíkt hefir maðr daglega fyrir augunum, ef augun að eins eru opin. Hinsvegarliggjamargir menn undir þunguoglang- vinnuböli, einsogblindi auminginn,sem Jesús læknaði, hvorki fyrir þá sök, að þeir hafi sérstaklega syndgað né heldr foreldrar þeirra. Mótlætið er ekki eingöngu afleiðing syndarinnar, það er líka komið yfir þá, er undir því liggja, til þess að guðs verk, hinn endrleysandi kærleikr drottins, opinberist. Krossinn er upp reistr

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.