Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1886, Síða 12

Sameiningin - 01.07.1886, Síða 12
I —76— voi: er sofnaSr", og átti viö að hann væri dáinn. Fyrir þeiin, sem sjá himnana opna eins og Stefán, er dauðinn ekki nerna eins og svefn. Ó, að vor dauði verði svo! 4. lexían er sÖQ'ulea’t framhald af lexíunni næstu á undan. þar segir frá komu Jesú, samtali Mörtu við hann út af bróður- missinum, og frá uppvakning hins iátna, Margir voru komnir í sorgarhúsið til að taka þátt í harmi systranna út af láti hins elsk- aða bróður. En enginn var nú neitt líkt því eins inndœll gestr eins og Jesús. Ó, að allir syrgjandi yfir önduðum ástvini vissi af Jesú hjá sér ! Marta segir við hann jafnskjótt oghann er kominn: „ Herra, hefðir þú verið hór, væri bróðir minn ekki dáinn “. Og þegar María rétt á eftir hitti hann, féll hún honum grátandi til fóta með sömu orðum. það eru nokkurs konar ávítunarorð, mild og kærleiksfull, full af auðmýkt og undirgefni að vísu, en þó ávítunarorð til Jesú fyrir það, hve seint hann kom, En loksins var hann þó kominn, og það var þó blessan, enda þótt Lazarus lægi nú í gröfinni. þegar Jesús spurði Mörtu, hvort hún tryði, þá svaraði hún : „ Já herra, eg hefi trúaff“. Hun þorði ekki að segja: „ Eg trúi", því í sorginni fann hún að trú hennar var nú svo veik orðin. „ Eg trúi, en hjálpa þú. trúarleysi mínu “ sagði hinn mœddi faðir hins sárt haldna sveins grátandi í Mark. 9, 23. það er þungt á raunastundum lífsins að finna trú sína veiklast, en ef sútilfinn- ing verðr til þess að draga mann enn þá nær drottni sínum, eins og þessi börn sorgarinnar, þá er ekki vert að kvarta. Maðr freist- ast þá ekki til að telja sér trú sína til gildis frammi fyrir guði né mönnum. Maðr stendr þá ekki frammi fyrir drottni biðjandi eins Faríseinn : „ Guð, eg þakka þér, að eg er ekki eins og aðrir menn “. Drottinn sagði við Pál: „ Lát þér nœgja mína náð, því minn kraftr sýnir sig fullkominn í veikleikanum “ (2, Kor. 12, 9). Mundu eftir því svari, kristinn maðr, þegar þér ofbýðr þinn eigin trúar- veikleiki.—það er sárt að standa grátandi yfir gröf þess eða þeirra, er maðr elskar eins og ljósið augna sinna. En það er þó tvennt ólíkt að standa þar, eða í hverjum öðrum sporum á lífsins og dauð- ans leið, í trú eða vantrú, með kristilegri von í hjartanu eða ókristi- legri örvænting. Jesús grét yfir gröf Lazarusar. „ Heimrinn á tvenns kyns tár : þau til eru bæði mjúk og sár; önnur frá himins sælu söluin, er svölun veita mœddúm hölum; en hin eru járnköld éljadrög. jafn-bitr eins og spjótalög“. (Kr. J.).

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.