Sameiningin - 01.07.1886, Síða 15
—79—
tjóni getr barnshjarta'ð naumast orðið heldr en því að missa
traustið. Hvílíkr gloepr er það þá, þegar föðurhöndin eða mdð-
urhöndin rænir barnið þessum ómetanlega dýrgrip!
—það er venjulega ekki meðlæti, heldr mótlæti, sem lífgar og
styrkir trúna. þegar allt annað sýnist bresta og bregðast, þá er
það að hin leiðandi kærleiks-hönd guðs kemr skýrast fram. Ef
maðr með óvanalega sterkri trú verðr á vegi þínum, þá er það
maðr, sem hefir verið reyndr meir en almennt gjörist. Og þegar
þú ert kallaðr út í ófyrirsénar og harðar raunir, þá getr þú þar
fundið nýja sönnun fyrir því, að guð elskar þig og að hann er
að draga þig nær sér með því, sem fremr öllu öðru eflir trúna.
—Séra Hans B. Thorgrímsen, sem þessi síðustu ár, síðan hann
vígðist til prests, hefir þjónað Yíkrsöfnuði og að nokkru leyti
einnig nábúasöfnuðunum íslenzku í Pembina County, Dakota,
hefir nú hætt því starfi og tekið við prestsembætti í norskum
siifnuði í bœnum Sioux Falls í Suðr-Dakota. það er tilfinn-
anlegt að missa hann, jafn-vellcynntan og samvizkusam an prest
frá oss Islendingum mitt í prestleysi safnaða vorra.
—Nú loksins er út komin Sálmabókin íslenzka, sem sjö manna
nefndin, er til þess var sett fyrir 8 árum, hefir unnið að. Nefnd-
arnrennirnir voru : séra Björn Halldórsson í Laufási, sem andað-
ist 1882, séra Helgi Hálfdanarson, forstöðumaðr prestaskólans
i Reykjavík, séra Mattías Jokkumsson í Odda, séra Páll Jóns-
son í Viðvík, séra Stefán Thórarensen að Kálfatjörn, Steingrímr
Thorsteinsson kennari við „lærða“ slcólann í Rvík, og séra Valde-
iuar Briem að Stóra-Núpi. Bókin er kostuð að útgáfunni til af
Sigfúsi Eymundssyni í Reykjavík og þar prentuð. Hún er í
litlu, en þægilegu 12 blaða broti; prentið gott, pappír heldr lé-
legr. Verð á íslandi á bókinni bundinni 3 kr. 75 a. eða 4 kr. eft-
Jr mismuni á bandi. Tala sálma er 650. Vér munum nákvæm-
ar tala um verk þetta síðar, ef guð lofar.
—Séra Sófonías Halldórsson í Goðdölum er orðinn prestr í
Viðvík í Skagafirði. Séra Stefán Thórarensen að Kálfatjörn
hefir fengið lausn frá prestsembætti. Kandídat Jón Sveins-
son er prestvígðr til Garða á Akranesi.
—Kirkjan á Stóru-Völlum í Rangárvallasýslu lögð niðr, og
sókninni skift milli þriggja kirkna þar í grenndinni.