Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1887, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.01.1887, Blaðsíða 6
—166— um menn hafa haft ranga stefnu að undanförnu, eða þá enga ákveðna stefnu. Látum lcristna kirkju hingað til hafa nærri því legið í rústum hjá oss. Látum trúna í hjörtum vorum hafa verið stórgallaða, einatt steindauða; látum vonina, hina kristi- legu von, einatt hafa veiklazt hjá oss; og látum kærleikann manna á rneðal oft hafa vantað. Jesús er þó enn á líti og hann býðr oss enn þá sína náð, býðr sig enn á ný fram til þess að hafa völdin hér hjá oss og vera andlegr konungr vor. Yér get- um byrjað nýtt blessunarríkt ár í dag fyrir oss alla. Vér get- um allir nú frammi fyrir guðs augliti greitt atkvæði með því, að hann hafi yfirráðin í mannfélagi voru, í söfnuði vorum, á heimilum vorum, yfir oss hvervetna á vegum voruin. Ef ein- hver er hór, sem finnr til þess, að hann hafi ekki staðið með drottni á liðinni tíð, þá slíti hann nú hjarta sitt frá heiminum og hégómanum og ranglætinu og gefi það drottni, og láti hann svo framvegis stýra því og varðveita það. Ertu ekki farinn að sjá, að það er svo miklu sælla að eiga hjá honum hjartað, heldr en ofrselja það illum heimsins öfium og hafa svo á hinni vondu tíð hvergi höfði sínu að að halla ? Hin vonda tíð, mótlætisins þunga tíð, er, ef til vill, ekki búin að heimsœkja þig enn, en hún kemr, vinr. Og eg ræð þér bróðurlega til að bíða ekki krist- indómslaus eða með tómt dautt kristindómsnafnið þangað til. Margr greiðir líklega í ár atkvæði með þeirn pólitiska fiokki, sem ekki hefir verið við völdin á næst undangengnum tíma, ekki vegna þess að hann hafi eiginlega svo mikið traust á embættis- mannaefnum þess flokks, heldr af því hann þykist vera búirm að fullreyna, að þeir, sem í völdum hafa setið, sé óhœfir til að stjórna, og þar af leiðanda sé þeir vissir um, að þeir skifta þó að minnsta kosti aldrei um til hins verra. Eg vildi spyrja hina kristindómslausu menn, ef nokkrir slíkir eru hér, hvort þeir vilji ekki gjöra eins. Látum yðr ekki þekkja kristna trú af eigin raun. Eitt getið þér séð: Verra en það, sem þér hafið, getið þér ekki fengið. þér missið ekkert við að sleppa vantrúnni. það vitið þór eins vel og eg. Hún liefir aldrei glatt yðr, aldrei hugg- að yðr, aldrei gefið yðr neitt, aldrei gjört yðr annað en illt. þó að trúin kristilega væri elcki neina mannlegir draumórar, hún væri samt gróði fyrir yðr, því þér getið þó ímyndað yðr, að það er sælt að dreyma um drottin sinn. Eg skal í þessu augnabliki ganga inn á, að trúin kristilega sé 'draumr; en þeir draumar eru allir fyrir daglátum. þeir draumar kotna allir fram. Einhver

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.