Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1887, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.01.1887, Qupperneq 7
—167— spyr mig: „Af hverju veiztu, að þessir kristilegu draumar ei- lífðinni viðvíkjandi rcetist ? “ Eg svara : „Eg veit það á því, að draumarnir kristilegu viðvíkjandi þessu lífi rœtast allir“. Mig hefir dreymt margt slíkt, og það hefir ávallt rœtzt. Eg vil ekki missa þessa drauma fyrir nokkurn mun, því þeir eru hið eina, sem heldr mér uppi í stormum lífsins, og eg vona að guð gefi, að þeir fái einnig haldið mér uppi í dauðanum. Eg vildi skora á þá,'sem andœfa kristindóminum, að til nefna þó ekki væri nema eitt fyrirheiti frelsarans þessu lífi viðvíkjandi, sem ekki roetist og þar af leiðanda hafi reynzt tál. Eg veit, að enginn getr komið með neitt slíkt. Svo það er þá víst, að þegar drott- inn Jesús býðr sig fram til að hafa völdin, hin ándlegu yfirráðin, á hendi, að vera konungr vor, þá efnir hann það, sem hann lof- ar, í sinni stjórn. Pólitisku kandídatarnir lofa hver í kapp við annan almenningi gulli og grœnum skógum, ef þeir komist til valda. Minnst helmingr af þeim loforðum reynist venjulega tál. Embættismennirnir höggva venjulega hver eftir annan í sama farið. Hverjir sem til embætta kornast, þá má oftast búast við, að allt verði eins og áðr var. það er eins og segir í Préd. bók (1, 9): „Hvað sem var, það mun aftr verða; hvað sem við hef- ir borið, það mun aftr bera við, svo að ekkert er nýtt undir sól- unni“. En Jesús bindr enda á loforð sín. Svo öllum er óhætt að gefa honum „atkvæði sitt. Sannleikans munnr svíkr engan af yðr, vinir. þér vitið það, sem persónulega hafið kosið yðr hann fyrir konung áðr. Og yðr þarf ekki að áminna, að halda tryggð við hann. þér vitið, að hin kristna trú er ekki tómr draumr. Eg vildi nú óska oss öllum þess, að vér hver út af fyr- ir sig og allir sameiginlega fengjum gott og blessað ár fyrir kirkju vora. það er mín hjartanleg ósk, að þó að stríðsamt kunni framvegis fyrir mörgum að verða með tilliti til líkam- legra ástœðna, að þá mætti öllum af yðr framvegis líða vel í andlegu tilliti. Og eg veit, að það verðr, það er einn af mínum kristilegu draumum, ef hver einstakr kýs sér nú Jesúm fyrir konuns 02: lætr svo hans sánnleiksanda og hans kærleiksanda halda sér framvegis í stefnunni. Gáið að, það er alþýðuvinrinn hinn eini og sanni, sem nú biðr um atkvæði yðar. Allir pólitisk- ir kandídatar þykjast auðvitað vera alþýðuvinir, þykjast munu gjöra svo og svo mikið fyrir almenning áðr en kosningar fara fram, ef þeir komist til valda. Menn trúi svo miklu af slíkum

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.