Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1894, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.06.1894, Blaðsíða 4
—52— valla svipaða stofnan í sinni kirkju til dýrðar frelsaranum, sem Gyðingar afneita. Upp úr Englands-ferS þessari hélt hann yfir um til meginlands norðrálfunnar. Komst hann til þýzkalands og heimsótti Fliedner prest í Kaiserwerth við Rín, sem frægr hefir orðið um allan hinn kristna heim fyrir díalconissu-stofnan sína og allt það líknarverk, er þar með er samfara. Og var er- indi Passavants auðvitað aðallega það, að kynuast verki Flied- ners, sér sjálfum til leiðbeiningar í hinu nýja kærleiksfyrirtœki, er drottinn hafði nú kallað hann til. Tók hann tafarlaust, er hann var heim kominn, að vinna í þessa átt. Og innan skamms varð til vísir að fyrstu líknarstofnaninni, sem hann kom á fót. það var í bœnum Alleghany, en skömmu seinna reis upp hið svo kallaða Pittsburgli Infirmary, stórt og merkilegt sjúkrahús, er oftast hefir kallað verið Passavants hospítal. Arið 1849 brá Fliedner sér yfir um til Ameríku, og komu með honum fjórar día- konissur, sem ágæta leiðbeining höfðu fengið á stofnaninni í Kaiserwerth í því að veita sjúkum mönnum andlega og líkam- lega hjúkran; réðust þær til vistar á hinum nýja spítala Passa- vants. Var sú ágæta stofnan með því fullmynduð. Lærðu nú smásaman fleiri og fleiri kristilega hugsandi konur díakonissu- verk á þessum frumspítala Passavants og voru þaðan, eftir því sem á þurfd að halda, sendar í þjónustu kærleikans til hinna ýmsu lílcnarstofnana, sem hinum mikla manni með aðstoð guðs og góðra manna síðar tókst að koma á fót. Meðan borgarastríð- ið mikla milli norðrríkjanna og suðrríkjanna stóð yfir, veitti Passavant bæði í eigin persónu og fyrir tilstyrk kvennanna frá Pittsburgh sjúkum og særðum mönnum á stjórnarspítölunum víðsvegar um landið hina rnestu hjálp, og hafði kirkja vor af því maklegan heiðr. Aliugi fór nú að koma upp annarsstaðar í kirkju lands þessa fyrir því að setja viðlíka díakonissu-stofnan- ir á fót, einkanlega í biskupakirkjunni ensku; en alit, sem í því efni hefir framkvæmt verið í hinum ýmsu prótestantisku kirkjudeildum, er til orðið fyrir álirif frá hinuin mikla starfs- manni lútersku kirkjunnar, dr. Passavant. Næst á eftir frumspítalanum í Pittsburgh fékk Passavant á fót komið samskonar stofnan í Milwaukee í Wisconsin-ríki. þar næst er að telja hið svo nefnda Emergcncy ITospital í Chi- cago, og loks spítala í Jacksonville í lllinois. Nýtr nú fjöldi

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.