Sameiningin - 01.05.1899, Side 16
48
kirkjufélag vort. Miðvikudaginn 26. Apríl 1899 útskrifaðist eg af
prestaskólanum í Chioago.
Margir hafa hjálpað mér á minni stuttu lífsleið. Fyrir utan umönn-
un foreldra minna og tilsögn kennara minna, sem eg fæ aldrei launað,
bróðurleg atlot skyldmenna og félaga minna,er ofthafa veitt mér aukinn
þrótt, og drengilega hjálp minna mörgu vina í Norðr-Dakota ásamt öðr-
um þeim, er veittu mér atvinnu og á einn eðr annan hátt studdu að
því, að eg gæti haldið áfram námi mínu, minnist eg sérstaklega með
innilegu þakklæti og klökku lijarta hins einlæga kærleika og mörgu
velgjörða séra Jóns Bjarnasonar og konu hans, frú Láru, er fyrst opn-
uðu fyrir mér möguleik til mennta. Guð launi þeim, sem mér hafa
hjálpað, og veiti mér styrk til að reynast trúr.
--------------------
Lead, kindly Light eru upphafsorð enska sálmsins, sembirtistíþessu
blaði ,,Sam.“ í íslenzkri þýðing eftir hr. Jón Runólfsson. Það er einn
hinna allra frægustu sálina, sem til eru á enskri tungu. Höfundrinn
var upphafiega eitt af hinum stóru ljósum biskupakirkjunnar á Eng-
landi, en sleit sambandi við hana og gekk inn í rómversk-kaþólsku
kirkjuna árið 1845. Og 38 árum síðar, árið 1878, var hann hafinn til
kardínála-tignar af Leó páfa hinum þrettánda. Hann andaðistáriðl890
nærri því nírœðr. Sálminn. sem hér er um að rœða, orkti hann árið 1833
á hafi úti, á sjóferðí Miðjarðarhafinu. Fyrirsögn sálmsins er: „Ský-
stólpinn11.
Hr. Magniís Pálsson, 309yí Elgin Ave., sendir „Sam.“ út.
Hr. Jón A. Blöndal, 207 Pacific Ave., Winnipeg, er féhiröir ,,Sam.“
,, EIMBEIÐIN", eitt fjölhreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á ís-
íenzku. Jtitgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. hvert hefti.
F æst hjá H. S. Bardal, S. Bergmann o. fl.
„KENNARINN“, mánaöarrit til notkunar við kristindómsfrœðslu barna í sunnu-
dagsskólum og heimahúsum; ketnr út í Minneota, Minn. Árgangrinn, 12 nr.,
kostar að eins 50 cts. Ritstjóri séra Björn B. Jónsson. Útg. S. Th. Westdal.
,,ÍSAFOLD“, lang-mesta blaðið á íslandi, kemr út tvisvar í viku allt árið; kostar
í Ameríku $1.50. Halldór S. Bardal, 181 King St,, Winnipeg, er útsölumaðr.
„VERÐI LJÓS !“—hið kirkjulega mánaðarrit Jeirra séra Jóns Ilelgasonar, séra
Sigurðar P. Sívertsens og Haralds Níelssonar í Reykjavík — til sölu í bókaverzlan
Ilalldórs S. Bardals í Winnipeg og kostaróo cts.
,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi: $1.00
árg.; greiðist fyrirfram. —Skrifstofa blaðsins: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba,
Canada.—Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Friðrik J. Bergmann, Jón A.Blöndal,
Pjörn B, Jónsson og Jónas A. Sigurðsson.
f>REfITSMIDJA LÖGBERGS — WlfíNfPEG,