Sameiningin - 01.05.1900, Page 14
46
Landnám þetta er í Municipality of Stanley, Manitoba,
rétt fyrir noröan landamerkjalínu Bandaríkjanna — norör af
Cavalier County. það eru ekki fullar 20 mílur norðvestr frá
Walhalla, N.-Dak., inn til íslenzku byggðarinnar, og álíka langt
er hún í suðr frá Morden, Man. Byggðin hófst, sem íslenzk
byggð, síðastliðið vor. Og nú mun vera þar nálægt 30 ísl.
landnemum. Áðr höfðu Mennonítar dvalið á þeim stöðvum,
og eru all-margir þeirra þar enn. Byggðin hefir enn ekkert
sérstakt ákveðið nafn og ekkert pósthús. Fá byggðarmenn
bréf sín ýmist til Morden, eða á pósthús sunnan ,,línunnar“
í Cavalier Co., sem Numedahl heitir. Flestir landnemarnir
eru héðan úr Dakota-byggðunum. Auk þeirra, sem numið
hafa þar land, eru nokkrir nú að kaupa þar bújarðir.
Föstudaginn 6. Apríl ók eg að heiman og inn til byggð-
arinnar. Dvaldi eg hjá fornvini mínum Jóni Sigfússyni.
Daginn eftir fór eg talsvert um byggðina og hitti að máli göm-
ul sóknarbörn mín. Veðr var hið blíðasta og slarkfœrt um
sveitina, þótt vegir sé enn engir. Á pálmasunnudag hafði eg
guðsþjónustu í húsi, er Mennonítar eiga oghagnýta fyrir bœna-
hús og til skólahalds. Flestir byggðarmanna sóttu þangað.
Við þá guðsþjónustu gengu um 20 manns til altaris. Eftir
messu skaut eg á fundi með mönnum. Var samþykkt, að
mynda söfnuð, og gengu í hann alls 79 manns. Var söfnuðr-
inn nefndr ,,Hinn ev. lút. Guðbrandssöfnuðr“, og er hann
heitinn eftir Guðbrandi þorlákssyni Hólabiskupi, þeim
manni, er hin lúterska kirkja íslands hefir átt einna á-
gætastan. Treysti eg fyllilega, að eins og hann gaf þjóð
vorri fyrstr manna biblíuna í íslenzkri þýðing, þannig geymi
þessi söfnuðr allt guðs opinberaða orð hinum íslenzku afkom-
endum.—Lög fyrir söfnuðinn voru þá samþykkt, sömuleiðis
grundvallarlög kirkjufélagsins, og mér falið að sœkja um inn-
göngu í kirkjufélagið fyrir hönd safnaðarins. í safnaðarstjórn,
sem kosin var, urðu þessir menn : Jón Sigfússon, þorsteinn
J. Gíslason, Sigfús S. Bergmann, þórðr Árnason og Tómas
Jóhannesson. Allt þetta verk gekk svo greiðlega og ánœgju-
lega, að fágætt má teljast. Fundrinn stóð yfir um klukku-
stund.—Enda hefir í nýlendu þessa tlutt sannkristið myndar-