Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1902, Síða 4

Sameiningin - 01.05.1902, Síða 4
36 En fáein frœkorn, fjólufrœ, sóleygjarfrœ og aörar skógar- blóma-tegundir, kváöu þaö upp í heyranda hljóði, að hvað sem öllum vísindum liöi væri þau um þaö fullviss — heilbrigö skynsemi sagði þeim það—, að í hinu forgengilega hismi lík- ama þeirra væri fólginn vísir lífstilveru, er fyrir þeim lægi eftir dauðann. Þeim var reyndar að sjálfsögðu það ofvaxið, að gjöra nákvæmlega grein fyrir eðli þessa nýja lífs eða því, á hvern hátt þau ætti að lifna aftr við eftir rotnanina. Það allt var þeim ekki full-ljóst. En þau höfðu vafalaust, óskeikan- legt hugboð um hreinna loft, bjartara ljós, sælla líf, sem þeim væri fyrirbúið. Og þeim var óhugsanlegt, að það hugboð reyndist tál. Þau trúðu á tilveru hluta, sem auga þeirra ekki hafði enn séð og eyra þeirra ekki enn neitt heyrt til. ,,Þetta er ekki annað en fagr draumr án nokkurs veru- leika“—sögðu vitringarnir, glottandi. ,,Þessar œstu ímynd- anir geta dugað yðr, einfeldningunum. Vér, sem upplýsing höfum fengið, viljurn ekki af ásettu ráði svifta yðr þessum heilaspuna, úr því hann virðist vera yðr til ánœgju. En vér, hin stóru sólarblómsfrœ—vér vitum, hvers virði slíkir draum- órar eru, og viljum vera lausir við þá. Það má sanna, að ekkert, sem í oss er, lifir eftir eyðing líkamans, og þetta líf vort hér á eingöngu rót sína að rekja til jarðneskra efna, sem runnið hafa saman uin stund, en eiga svo fyrir sér að leysast sundr aftr innan skamms. Trú yðar er heimska. “ Frœkornin litlu trúuðu, sem alls ekki létu hina vantrúuðu vitringa telja sér hughvarf, höfðu félagskap sín á milli til þess að minna hvert annað á hina sameiginlegu von þeirra. Og til svo mikillar huggunar urðu þeim félagsfundir þeirra, að mörg þeirra þráöu jafnvel þá stund, er garðyrkjumaörinn kœmi til þess að taka þau og gróðrsetja þau í jörðinni. Loks upprann sá dagr frœkornunum öllum. Húsbóndi þeirra kom, og þau urðu að láta flytja sig burt úr húsnæðinu notalega í kössunum og sökkva sér niðríkalda og hráslagafulla moldina í garði einum stórum. En hin litlu fjólufrœ og sóleygjarfrœ kenndu ekki neins kvíða, er þau voru látin niðr í hálf-opna leirgröfina. Hin sæla von, sem hjá þeim var innan brjósts, hélthuga þeirra uppi,og þau sögðu hvert við annað,er

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.