Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1902, Side 9

Sameiningin - 01.05.1902, Side 9
4i mannsins. Vér fáum ekki án guös verið. Oss er ekki nóg aS eiga trúna á þessu lægsta stigi, þar sem hún er aö eins til- trú eins manns til annars. Oss er hún aS öllu leyti ónóg, ekki sízt vegna þesss, aS hún dregr oss svo oft á tálar, af því mennirnir, sem vér trúum, eru alla vega breyskir og ófull- komnir. Flestir menn hafa einhverja guSstrú. Hún er á ýmsu stigi og lendir oft út í villu og allskonar hjátrú og heimsku, eins og trúarbrögS heiðingjanna bera áþreifanlegan vott um. Samt skoða ffestir þau sem fálm mannsandans eftir hinurn sanna guöi. Og þeirri skoSun heldr postulinn Páll fram, þegar hann talar viö grísku spekingana á Areópagus. MaSrinn leitar eftir guSi og guS leitar eftir manninum, þvf í honum lifum, hrœrumst og erum vér. GuS leitast viS aö kenna manninum aS þekkja sig. Og trúarþörf mannsins knýr hann á staS í leit eftir þessari guösþekking. Þar sem hin siSferSislega alvara í þessari leit er nógu mikil til þess leitin sé einlæg leit, þar sem manninum finnst öll velferS und- ir því komin aö hann finni, þar fær hinn sanni guö sett sig í samband viö sálir mannanna og gefiö þeim sjálfan sig til kynna. A meöal fornþjóöanna átti þetta sér staS hjá Israelsþjóö um fram allar aörar. Vér fáum ekki skýrt það á neinn'ann- an hátt, að guð útvelr sér þá þjóð um fram aðrar. Alvaran í leitinni eftir honum, þörfin í sálunum eftir hinu eina áreið- anlega, hefir þar hlotið að vera meiri en hjá öSrum þjóðum og öll þau skilyrði, sem nauðsynleg voru til þess að þekking- in á sönnum guSi gæti fram komiö meSal mannanna og öölazt ákveðna mynd. Enda sannar saga Israels þetta, þegar vér berum hana saman við sögu annarra fornþjóða. Samvizku- hlið mannsandans er þar betr vakandi en með nokkurri ann- arri þjóð. En vakandi samvizka er nauðsynlegr jarðvegr fyr- ir guðlega opinbernn. Einungis í þeim siöferðislega jarðvegi fær blóm hinnar sönnu guðstrúar vaxið og þroskazt. Þess vegna er líka einungis ein opinberun til og ein sönn og áreiðanleg opinberunar-trúarbrögö. Hin önnur trúar- brögð, er fram hafa komið meðal mannanna, bera það með

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.