Sameiningin - 01.12.1902, Síða 4
14«
inótíegt þorp, seni ekkert þaS hefir viö sig hiö ytra, er veki
aðdáun manna nú frernr en í fornöld. Allt þar umhverfis er
óbreytt frá því, er áör var. Sömu merkrnar og sanra loftið
þar uppi yfir eins og forðum, þá er birta drottins ljómaði á
þeim stöövum umhverfis fjárhirðana í nætrkyrrðinni og hinir
himnesku herskarar englanna hófu upp lofsöng sinn til guðs
hina fyrstu jólanótt. Svo lítil hefir breyting orðiö á siövenj-
um og ástœðum fólks í landinu helga á liðnum öldum, að
óhætt er að segja: Betlehem hlýtr að hafa litið út fyrir
tveim þúsundum ára mjög líkt því, sem það þorp lítr út nú.
Hinn litli bœr stendr uppi í klettaás einum, sem er eins
og skeifa í laginu. Þetta er í Júdeu-fjalllendi skammt frá
Jerúsalem. Stræti bœjarins eru svo mjó, að vögnum verðr
að eins með naumindum um þau ekið. Fólkstala í Betlehem
er'um 5,000. Eiginlega er að eins eitt verulegt stræti þar
til — aðalstrætið, en margir smástígir liggja út úr því í allar
áttir og rnjög óreglulega. Húsin eru úr gráleitum steini, og á
þeim eru í stað glugga smuguop, sem lckað er með rimla-
hlerurn. Svo gömul eru þau hús og óheilnæm, að í engu
menntuðu landi þykir nú unanda við önnur eins híbýli.
Fíkjutré, olíutré og döðlupálmar vaxa á bœjarásnum.
Pílagrímum þeim, er heimsœkja Betlehem, fer fjölganda
með ári nverju. Að morgni jóladagsins, meðan allt fólk í
voru landi er í fasta svefni, nerna þar sem óttusöngvar tíðk-
ast, leggja þúsundir pílagríma á stað frá Jerúsalem, gogn um
jaffa-hliðið, áleiðis til Betlehem. Sumir þeirra eru ríöandi;
en sökum þess, hve afskaplega vondr er vegrinn og lélegir
vagnar og hestar, kjósa flestir heldr að fara fótgangandi. Þá
er til Betlehem er komið, þyrpast pílagrímarnir vanalega
saman í Maríukirkjunni, sem stendr á torgi bœjarins og hefir
reist verið fœðing Krists til hciðrs. Nokkrir úr hópi pílagrím-
anna skunda þó oftast í mestu ákefð út úr bœnum til stöðva
þeirra, er kenndar eru við fjárhirðana. Þar er þeim bent á
lilett einn helgari, þar sem engill drottins, niðr stiginn af
himni, birtist fjárhirðunnm.
Geta má Jress, að veðrið í Gyðingalandi er ávallt mjög
liaprt í Desembennánuði, einkum þó að nætrlagi. Klerkr