Sameiningin - 01.04.1903, Page 2
l8
4. Líknar-nœgö þú ljómar af —
líkn aö hylja mína sekt;
elsku þinnar opna haf,
íklæð hreinleik hjartans nekt.
Herra, þú ert lífsins lind,
lát mig þyrstan bergja’ af þér;
þvo burt minnar sálar synd,
svala þú um eilífö mér.
Vísindalegar mótsagnir.
í fyrra flutti dr. Frederic Delitzsch, hálærðr Þjóöverji og
og meðal annars frægr fyrir lærdóm sinn í Assýríu-frœði, fyrir-
lestr í Berlin frammi fyrir Vilhjálmi Þýzkalandskeisara og
fjölda annarra stórmenna um ,,Babel og biblíuna“. Um
þann fyrirlestr var ákaflega mikið rœtt og ritað á eftir. Þar
komu fram mjög sterk mótmæli gegn guðlegum innblæstri
gamla testamentisins, og voru þau mótmæli, komandi frá svo
viðrkenndum vísindamanni, hið mesta fagnaðarefni áhang-
endum hinnar vantrúuðu biblíu-, ,kritíkar“, en kristinni trú
hins vegar til hneykslunar. Höfundr fyrirlestrs þess hefir
löngu áðr verið kunnr fyrir skynsemistrúarstefnu sína, þar
sem faðir hans aftr á móti, dr. Franz Delitzsch (t 1890), var
jafnt frægr fyrir lærdóm sinn og fastheldni sína við trúna á
Jesúm Krist og biblíuna sem guðs orð. Nú aftr í byrjan
þessa árs fékk Frederic Delitzsch áskoran frá keisaranum til
að flytja annan fyrirlestr í höfuðstað Þýzkalands um sama
efni, og það gjörði hann. En þetta síðara erindi hans
gekk enn lengra í vantrúaráttina en hið fyrra. Og þótti
keisara, sem er trúaðr kristinn maðr, en þó í þeim efnum
mjög frjálslyndr, það keyra fram úr öllu hófi. Og hann gat
ekki á sér setið með að koma sjálfr opinberlega frarn meö
mótmæli gegn þessum vísindalegu og vantrúuðu kenningar-
öfgum.
Mergrinn málsins í þessum nýja fyrirlestri hins þýzka
prófessors er það, að gamla testamentið hafi enga opinberan
inni að halda snertandi Jesúm sem hinn fyrirheitna Messías,