Sameiningin - 01.04.1903, Page 14
30
til falls eöa viðreisnar; en hvort heldur hann verör, þaS er á
þínu valdi. Hin mikla barátta milli trúar og vantrúar, sem
nú á tímum er háS, meS jafnvel enn meiri ákafa en nokkru
sinni áSr, er áþreifanlegt tákn þess, aö augu manna eru aS
opnast fyrir því, aS þeir geta ekki gengiö afskiftalaust fram
hjá Jesú Kristi, heldr hljóta aö mynda sér ákveöna skoSun um
hann, og samkvæmt henni skipa sér í flokk annaöhvort meö
vinum hans eSa óvinum. En í hvorum flokknum ætlar þú aö
vera ? Ef þér finnst, aS þú meS þeim rökum, sem þú hefir
fyrir hendi, meS engu móti getir trúaö á Jesúm Krist og guö-
dóm hans, þá gakktu, kæri vinr, leiöar þinnar eins og svo
margir, sem hér í lífi algjörlega gleymdu Jesú. Vera má, aö
þú finnir ekki, hvílíkt slys og fár þú hefir bakaS þér meS vali
þínu, meöan lífssól þín skín í heiSi og heimslániS brosir viS
þér. En þegar hamingjan hefir snúiö bakinu viö þér og .
vonarsól þín er döprum skýjum hulin, þá vekti þaö ekki
undrun mína, þó að þú fyndir sárt til þess, hversu lífiS er
þungbært án Jesú og teldir þá stund sælasta, er guös andi
legöi þér aftr orS bœnarinnar á varir, svo aö þú gætir beöiö
meö sálmaskáldinu :
,,Ó, gjör oss börn, og gef oss aftr jólin,
hin glööu jól, meS helgri barnatrú ;
um miSja nótt þá rennr signuö sólin;
ó, sólar herra, ásján til vor snú !
Þín jólaljós, þó jarönesk hverfi sólin,
í Jesú nafni skíni til vor nú“.*)
Guö gæfi, aö sú stund mætti renna sem fyrst upp í lífi
þínu, aö þér auönaöist aS sjá Jesúm eins og hann er, sjá dýrS
hans, dýrö sem hins eingetna föSursins. En þú, sem á hinn
bóginn trúir á Jesúm Krist og guSdóm hans, og því skipar þér
í flokk meö vinum hans, vertu sannr flokksmaSr. Láttu
hvorki hleypidóma heimsins né ótta fyrir mönnum hræSa þig
frá aS þjóna honum opinberlega og helga honum alla þína
krafta. Vertu ekki í flokki þeirra, sem aö eins aS nafninu eru
kristnir, sem ekki hafa þor til þess aö afneita honum opinber-
lega, en ekki heldr þrek til aö fylgja honum eftir. GjörSu
ekkert annaS aS markmiöi lífs þíns en þetta eina, aö elska
Jesúm og lifa fyrir hann; og því betr sem þér tekst aö leiöa
lífsstraumana frá Jesú inn í gjörvallt líf þitt, því betr munt þú
reyna meS Páli postula, aö þú þarft ekki aö fyrirverSa þig
fyrir Krists fagnaSarerindi, því aö þaö er kraftr guös til sálu-
hjálpar sérhverjum, sem trúir.
*) Í3r jólanætr-ljóÐum séra Matt. Jokkumssonar frá 1890.—,,Sam." VI, 2.