Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1903, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.04.1903, Blaðsíða 11
27 En þó a5 Jesús hafi nú ekki vísvitandi sagt ósatt, er það þó ekki hugsanlegt, aö hann hafi gjört þaö óafvitandi, blekkt- ur af rangri ítnyndun, og hafi þannig verið ringltrúarmaðr? Slíkt er óhugsanlegt, og vitna það auk annars athafnir hans. Hvað sem Jesús aðhefst, þá finnum vér aldrei hjá honum þann ákafa og ofstopa, sem er einkenni ringltrúarmanna. Geðshrœringarlaus er hann reyndar ekki. Vér sjáum, að hann hryggist, gleðst, og reiðist af heilagri vandlæting. En ávallt ’nefir hann fullkomið vald yfir geðshrœringum sínum. Ekki finnum vér hjá honum trú á drauma eða fyrirburði, sem ringitrúarlífið er svo auðugt af; og með því að bera líf hans saman við líf einhvers þess ringltrúarmanns, er vér þekkjum, getum vér bezt sannfœrzt um, hvílíkt djúp er staðfest á milli hans og þeirra. Af því, sem hér að framan er sagt, vona eg að það verði Ijóst, að bæði líferni Jesú og kenning vitnar um guðdóm hans. Eg hefi enn þá gengið fram hjá kraftaverkunum, sem margir telja svo þýðingarmikil, og vitna þegar til, ef þeir vilja leiða rök að guðdómi Jesú. Eg hefi gjört það vegna þess, að mér finnst kraftaverkin eigi hafa eins mikið sönnunargildi og al- mennt er álitið. Það eru fleiri en Jesús, sem hafa gjört kraftaverk. Móses gjörði kraftaverk, þegar hann framleiddi vatnið á eyðimörkinni, með því að slá staf sfnum á hellustein- inn. Spámaðrinn Elfsa gjörði kraftaverk, þegar hann lífgaði son ekkjunnar í Súnem. Margir af postulunum gjörðu einnig kraftaverk. En það er þó eitt kraftaverk Jesú, sem eigi verðr gengið fram hjá í þessu sambandi, með því að það er svo sér- stakt í sinni röð. Þetta kraftaverk er upprisu-undrið. Vér eigum hér líka því láni að fagna, að upprisa Jesú er sem sögu- legr atburðr eins vel rökstudd og nokkur sögulegr atburðr getr verið. En eins og kunnugt er, þá er á þeim atburði grund- völluð trúin á Jesúm Krist sem sigrvegara dauðans og lávarð lífsins. En allir þessir ytri vitnisburðir, sem trúin á guðdóm Jesú Krists styðst við, geta eigi orðið fullnœgjandi fyrir einstakling- inn, nema þvf að eins að innri vitnisburðir hjarta hans boetist við. Til þess aö-geta trúað á Jesúm Krist verö eg að hafa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.