Lífið - 01.01.1938, Page 523
621
LIFIÐ
ar, að eitthvað spyrjist um það, nema að síður
væri. Skal eg með þessum línum rökfæra þá skoðun
mína.
íslendingar eru fullvalda þjóð og hljóta því að
gera þá kröfu til allra annara þjóða, að þær virði
lög þau og rétt, sem hér ríkja, en jafnframt ber
þeim að gæta þess, að ekkert ríki nái hér þeim ítök-
um, sem geti orðið öðru ríki ásteytingarsteinn,
hvorki með harðsnúnu flokksfylgi eða hernaðar-
legri aðstöðu. Nú er það alþjóð kunnugt, að þýskir
menn hafa stundað hér „rannsóknir“, er þykja í
meira lagi grunsamlegar og það um nokkuð langt
skeið. Það þarf ekki að fjölyrða mai'gt um það,
hvort ,,náttúrufræðingar“ þeir, sem höfðu bækistöð
sína við Mývatn í fyrra, hefðu þui’ft að hafa stutt-
bylgjustöð, er daglega sendi og tók á móti skeyt-
um, enda þótt slíkt athæfi sé bannað samkvæmt ís-
lenskum lögum. Flugferðir þýskra s. 1. sumar, bæði
leynt og ljóst, voru þess eðlis, að tæplega mun hægt
að kalla þær kui’teisisflugfei'ðii', að ógleymdum yf-
hgangi og lögbrotum sjóliðanna af ,,Emden“ í á-
gústmánuði. Alt þetta og mai’gt annað varð til þess,
að óhug sló á alla alþýðu rnanna og jafnvel sjálf
stjórnarvöldin, er það spurðist samtímis, að hingað
væi’i von á ,,Emden“ í annað sinn og að flokkur naz-
ista væri á leið til íslands og skyldu þeir leitast við
að fá hér flughafnir til fai’þegaflugs til Ameríku.
>,Emden“ var áreiðanlega engum héi'lendum mönn-
um auðfúsugestur, en hitt var þó hálfu ískyggilegra,
að Berlínai’-stjórnin skyldi falast eftir flughöfnum.
„Pan-Amerikan Airways“, sem hafði eitt sinn í