Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1955, Page 4

Sameiningin - 01.10.1955, Page 4
26 Sameiningin Miðvikudagsmorguns skin myrkum skugga vék á flótta, þeir, er Jesúm velja að vin vita ei neitt um kvíða og ótta. Elska hans þeim gleði gefur, gæzka hans þá örmum vefur. Fimmtudagsins fagra sól færir ylinn hverju strái, lýsa yfir laut og hól, lífsgeislar er heitt eg þrái. Ó, sú náð er aldrei þrýtur. Ó, sú gleði er sál mín hlýtur. Föstudagsins friðarblær fögnuð vekur mörgu hjarta, gefst mér sólargeisli skær, gleymist næturhúmið svarta. Drottinn enn mig annazt hefur, enn mér líf og birtu gefur. Laugardagsins ljúfi blær leikur milt um viðkvæm sárin, glaður sólargeisli skær af grasi þerrar daggar-tárin. Kærleiksgeislar Guðs frá hjarta gefa líf og fegurð bjarta. Alla daga. Alla stund er Guðs náð að verma og blessa gefa þrek í þreytta mund þjáðan lækna, dapran hressa. Lof á nóttu, lof á degi, lífsins Guði af hjarta eg segi.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.