Sameiningin - 01.10.1955, Síða 6
28
Sameiningin
komu blaðsins og markaði stefnu þess, og mun Sameiningin
njóta verka hans svo lengi hún á sér aldur. Saga ritsins
verður ekki rakin hér, en tvennt mun mega þakka öðru
fremur á liðnum áratugum. Allt frá byrjun hefur það haldið
vörð um íslenzka tungu og farið vel með málið, enda hafa
ritstjórarnir verið unnendur tungunnar og vökulir um vel-
ferð hennar. Nú ræða menn framtíð íslenzkunnar hér vestra
og gætir vonleysis hjá mörgum og eigi að ástæðulausu.
Ýmsir vilja þó spyrna við fótum og er það vel. Sameiningin
hefur stóru hlutverki að gegna í þessu efni og reynist
vonandi trú þeim þætti í stefnu sinni.
Meginliðurinn í stefnuskrá blaðsins var þó að standa
vörð um og vinna að útbreiðslu evangelisks kristindóms á
grundvelli lúterskrar kirkju. Það er mjög þakkarvert,
hversu djarflega leiðtogar blaðsins hafa á allan hátt leitazt
við að vera stefnumiði þessu trúir. Það má ef til vill líkja
fyrstu áratugunum í sögu Vestur-íslendinga við vorkomu
og fylgdu mikil umrót, leysing og byltingar í andlegum
málum. Sameiningin átti því snemma í baráttu, er á stund-
um varð bæði hörð og óvægin. Þegar tímar liðu færðist
meiri ró yfir hugi fólks og skilningur og virðing fyrir
ólíkum og andstæðum skoðunum manna á meðal fór vax-
andi. Sameiningin hefur átt sinn ríka þátt í að marka og
móta meðferð og skipan mála innan hins íslenzk-lúterska
kirkjufélags og einnig hefur blaðið haft mikil áhrif á hugi
manna og skoðanir í trúmálum bæði austan hafs og vestan.
Hún á og hóp góðra lesenda og velunnara víða um byggðir
Islendinga. Það er því mjög skiljanlegt, að mörgum
finnist nú stutt stigið í framfaraátt og ris blaðsins lækkað
að mun, með því að fela mér ritstjórnina alls óreyndum og
nýkomnum austan um haf.
Á hinn bóginn vil ég þakka það traust, sem mér er sýnt
og samtímis fagna ég þessu verkefni, því að ég sé Sameining-
unni mikið starf fyrir höndum og háleitt markmið.
í heiminum eru nú uppi margar raddir, sem láta í ljósi
von sína um nánari samtök og samvinnu fólks, er játar
Jesú Krist sem Drottinn sinn og Frelsara. Stofnun Alheims-
kirkjuráðsins í Amsterdam 1948 er stærsta skrefið í þá átt
og er nú sífellt unnið að málum þessum af festu og einlægni.