Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1955, Page 7

Sameiningin - 01.10.1955, Page 7
Sameiningin 29 Hin evangeliska lúterska kirkja meðal íslendinga báðum megin hafsins er þátttakandi í samtökum þessum. Slík heildarsamtök verða aldrei áhrifamikil, nema einstakling- arnir innan þeirra eigi sterka trúarvissu og þann fórnfúsa kærleika, sem er grundvöllur einingarinnar í Kristi. Við íslendingar höfum hér verk að vinna og einlæg von mín er sú, að riti þessu takist að efla „sameiningu“ íslendinga allra í málum þessum og því mun verða leitað eftir vinsemd og stuðningi „að heiman“ og um leið reynt að gera blaðið svo úr garði, að lesendur á íslandi sem hér vestra megi gagn og ánægju af því hafa. Við höfum margt að læra um starf trúbræðra okkar út um heim og það er sannfæring mín, að nánari kynning og samvinna við aðrar kristnar kirkjudeildir muni hafa hvetjandi áhrif á trúar- og kirkjulíf okkar. Sameiningin mun leitast við nú sem fyrr að reynast stefnu sinni og markmiði trú. í hverju hefti mun reynt að birta ræður eða ritgerðir, sem auki mönnum skilning á kristnum boðskap og hafi styrkjandi og vekjandi áhrif á trú lesenda. Þá mun blaðið birta fræðandi greinir um ýmsa þætti í starfsemi kirkjunnar og leitast við að auka kynn- ingu manna og áhuga á einingarstarfi því, er nú er svo mjög unnið að. Fréttadálkur mun væntanlega fylgja hverju hefti og umsagnir um bækur og rit. Yfirleitt mun reynt að gera Sameininguna svo úr garði, að hún megi halda áfram að gegna því hlutverki, sem henni var ætlað og hún hefur hingað til gegnt undir stjórn fyrri ritstjóra. Við munum taka feginshendi hverju því efni, sem styðja mun þá stefnu á einn eða annan hátt. Ég fylgi þessu hefti úr hlaði vongóður um vinsamlegar móttökur og vaxandi fylgi við blaðið og stefnu þess. Ég geri mér ljósa gallana og tek með þökkum öllum sann- gjörnum og vinsamlegum leiðbeiningum. Við leggjum blaðinu úr höfn í von um góðan árangur þess og í bæn um vegvísan og varðveizlu Guðs. Það er gleðin mikla, að mál- efnið, sem blaðið berst fyrir, fagnaðarboðskapur Drottins Jesús Krists, bifast aldrei né líður undir lok. Sá sannleikur veiti ykkur lesendum öllum fögnuð og frið. —Bragi Friðriksson

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.