Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1955, Síða 10

Sameiningin - 01.10.1955, Síða 10
32 Sameiningin inga er fólginn í einu hugtaki, sem mikið heyrðist á þessu mínu fyrsta kirkjuþingi vestan hafs, en þetta orð var “stewardship,” ráðsmennska. Að hver einstaklingur hafi hlotið úr hendi Guðs síns talentu og beri að ávaxta hana, en af ávöxtunum beri honum að láta eitthvað af hendi rakna til Guðs og kirkju hans. Samskotin, sem voru mér einna mestur þyrnir í augum í messunum, fengu á sig annan svip. Þau báru ekki lengur keim af betli, eins og mér fyrst fannst hljóta að vera, heldur var þarna hver kristinn maður að láta sinn skerf af hendi rakna, skerf, sem honum raunveru- lega bar að standa skil á. f þessum anda hafði Gimlisöfnuður, sem ekki er mjög stór, reist kirkju þá, sem þingfundir voru háðir í. Stórt og veglegt guðshús, fagurt og hentugt fyrir blómlegt safnaðarstarf. Annað orð var það, sem títt bar á góma í ræðum full- trúanna og samtölum, en það var orðið “evangelism.” Felst í því allsherjar boðun fagnaðarerindisins um alla Norður-Ameríku. Mun ætlunin að hvarvetna, þar sem lútherskur söfnuður í sambandi við IJLCA er, skipuleggi hann heimsóknir um allt nágrennið. Fari safnaðarmenn tveir og tveir saman út, ræði við fólk um kirkju- og trúmál og bjóði þeim að koma á samkomur 1 kirkjunum, sem verða haldnar samfleitt í heila viku. Það er ætlunin að hefja þessa herferð á miðju ári 1956. Það eru ekki prestar, sem eiga að heimsækja, heldur leikmenn. Á þeirra herðum hvílir fram- kvæmd og árangur að mestu leyti. Sást það enda greinilega á þinginu, að Kirkjufélagið er ekki prestakirkja heldur leik- manna. Þarna voru prestar skiljanlega í miklum minnihluta og höfðu engin sérréttindi. Þeir voru rétt sem aðrir fulltrúar. Að vísu er innan Kirkjufélagsins sérstakt prestafélag og hélt það fund á meðan á þingtíma stóð, en sá fundur var stuttur, enda er ekkert mál Kirkjufélagsins sérstakt einka- mál presta þess. Mál þingsins var enska. En eitt kvöldið var þó algjörlega helgað íslenzkum málum og þá fór allt fram á íslenzku. Flutti þar séra Bragi R. Friðriksson messu, séra Eiríkur S. Brynjólfsson ræddi af eldmóði um sambandið á milli Kirkjufélagsins og Þjóðkirkju íslands. Lagði hann á það áherzlu, að hvorir tveggja gætu af hinum nokkuð lært. Þá ræddi séra Ólafur Skúlason um Skálholt og endurreisn þess.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.