Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 15
Sameiningin 37 með bænina. Það eitt, að samþykkja hana sem auðugustu uppsprettu óþekktra afla í tilverunni, mun einskis megna fyrir oss. Það er aðeins, er vér reynum trú vora í bæn, að oss opinberast ný undur breytts og umskapaðs lífs. Líkt og Kólumbus finnum vér ef til vill ekki það, sem vér leituðum eftir, en það mun samt verða eitthvað enn undursamlegra. Legg einnig á djúpið til að kanna Ritninguna, því að hún geymir ómælanlega fjársjóðu. Mestu varðar, að þar finnum vér Hann, sem réttilega hefur verið nefndur: Mestur í heimi, og um Hann hefur þetta líka verið sagt: „Öllu her- liði, sem fylkt hefur verið og flotum er fleytt var, þing- heimum, sem á rökstóla settust, og konungar, sem ríkjum hafa ráðið, hefur ekki öllum til samans tekizt að hafa svo djúptæk áhrif á mannkynið sem líf þessa eina manns.“ Þegar þú hefur gjört þessa mestu uppgötvun lífs þíns mun það hvetja þig til þess að leggja allt að mörkum til að líkjast Kristi á allan hátt. Þér mun þykja miður, hversu skammt þú áður náðir í lífi þínu og munt nú þrá þróttmikið og einlægt starf á kristnum grundvelli. Lengur munt þú ekki una því að þykja rétt vænt um vini þína heldur leitast við að elska óvini þína. Fúslega muntu leggja lykkju á leið þína og bjóða hina kinnina.. Þér mun ei lengur þykja nægi- legt að gefa „afganginn" til kærleiksverka heldur munt þú þrá að gefa allt, sem þú hefur: tíma þinn, gáfur og eigur í þágu Drottins. ☆ ☆ ☆ Þú munt verða fús að koma til Hans hiklaust. Þú munt vilja koma eins og þú ert í þeirri einu vissu, að Kristur dó fyrir þig. Og engu mun það skipta hversu stormar kunna að verða stríðir á lífsins sjó, kalli hans viltu hlýða og leggja út á djúpið í krafti Heilags Anda. ☆ ☆ ☆ Þú þarft ekkert að óttast, vinur minn, ef þú ferð að orðum Frelsarans, því að hann mun verða með í förinni gegnum líf og dauða. Hönd hans mun verða á stjórnvölnum. Og áttaviti hans eða leiðarvísir mun aldrei bregðast.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.