Sameiningin - 01.10.1955, Page 17
Sameiningin
39
Af systkinum Þorsteins er nú einn bróðir á lífi, Jón
Magnús, bóndi í hinni fornu Brown-byggð við Morden,
gildur bóndi og hinn merkasti maður, kvæntur Margréti
Pálsdóttur ísakssonar og konu hans Sigríðar Eyjólfsdóttur,
er bæði eru ættuð úr Árnessýslu. Látin eru:
Anna Ingibjörg, Mrs. J. S. Gillis, d. 1927; Dr. Gísli Guð-
mundur, Grand Forks, N. Dak., d. 1934; Oddný, d. 1949, í
Brown P.O. byggð. —
Á ungþroska árum sínum, og alla ævi, átti Þorsteinn
mikla fræðslu- og menntalöngun, en kringumstæður öftruðu
honum frá skólagöngu, utan þess að í tvo vetur stundaði
hann verzlunarskólanám í Grand Forks. Fyrstu árin í
Brown-byggðinni bjó hann með móður sinni og systkinum,
er heima dvöldu. Árið 1909 keypti hann verzlun Jósteins
Halldórssonar og starfrækti hana til ársins 1927. Samtímis
hafði hann póstafgreiðslu með höndum í byggð sinni. Er
hann hætti við verzlun hóf hann búskap á eignarjörð sinni
og bjó þar til dauðadags.
Árið 1916 kvæntist Þorsteinn Lovísu hjúkrunarkonu
Jónsdóttur Þorlákssonar frá Stóru-Tjörnum í Suður-Þing-
eyjarsýslu, bróður séra N. S. Thorlákssonar og þeirra
systkina. Kona Jóns, en móðir Lovísu, var Petrína Guðna-
dóttir Jónssonar, fædd að Arnarvatni í Mývatnssveit. Móðir
Guðna var Sigríður Sigurðardóttir frá Gautlöndum. Petrína,
móðir Lovísu, andaðist í Grand Forks, N. Dak., 9. jan. 1912,
aðeins 46 ára að aldri. —
Heimili Þorsteins og Lovísu mun ávallt hafa mátt telja
félagslega miðstöð byggðarinnar. Þangað var gott að koma,
góðar viðtökur, jafnt heimabyggðarfólki sem langferða-
mönnum. Ættar- og ástvinatryggð hjónanna beggja var
óvenjulega traust og fögur, svo fágætt má telja. Bæði voru
þau leiðtogar og meginstoðir í félagslífi byggðar sinnar.
Mér virðist vart ofmælt, að þau væru lífið og sálin í Guð-
brandssöfnuði, þótt þau séu og hafi jafnan verið dyggir og
trúir starfsmenn að verki. Sama má segja um starf þjóð-
ræknisdeildarinnar í byggðinni, sem ávallt hefur verið
fjörugt og lifandi. Hjónin bæði áttu yfir svo miklum hæfi-
leikum að ráða: Lovísa frábæra sönghæfni og túlkun í
tónlist, sem knýr fólk til að vera þátttakendur hvort heldur
er í því að syngja hina dýrðlegu íslenzku sálma eða ætt-