Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 23
Sameiningin
45
Biskup íslands, Dr. Ásmundur Guðmundsson, kom
snemma í septembermánuði s.l heim frá því að sitja biskupa-
fund Norðurlanda. Kirkjur Norðurlandanna auka nú stöðugt
samtök sín og samvinnu og má alls góðs vænta af því. 1
undirbúningi eru nú mikil hátíðahöld í tilefni af 900 ára
afmæli Skálholts að sumri. Sameiningin mun síðar birta
fréttir af þeim málum.
☆ ☆ ☆
Meðlimatala kirkjunnar í Bandaríkjunum hefur aukizt
um 32 miljónir á síðustu 15 árum, segir blaðið Christian
Herald.
☆ ☆ ☆
Kommúnistastjórnin á Austur-Þýzkalandi bannar há-
skólamönnum að ferðast í önnur lönd, jafnvel austan við
„járntjaldið“, til guðfræðináms.
☆ ☆ ☆
Lúterskir Norðmenn í Bandaríkjunum hafa nú lagt
niður trúboðsstarf á meðal Indíána í grennd við bæinn
Wittenberg í Wisconsin. Þeir höfðu starfrækt þessa trúboðs-
stöð í 70 ár. Trúboðsnefndin, sem þessu ræður, að kristnum
söfnuðum sé skylt að annast gjörvallan lýð í þessu nágrenni,
án tillits til hörundslitar eða efnahags.
☆ ☆ ☆
Glæpir virðast vera allmjög í rénun á Bretlandi um
þessar mundir. Um áramótin voru yfir 23 þúsundir saka-
manna í fangabúðum landsins; en í septembermánuði var
talan komin niður í 21,200. Breytingin stafar af batnandi
lífskjörum alþýðunnar, segja Bretar. En sá er hængur á
þessari framför, að ungir lögbrjótar koma nú ekki lengur
aðallega frá öreigalýð landsins, heldur úr miðstéttum og
jafnvel frá heimilum „heldra“ fólksins. Eitthvað annað en
örbirgðin ein veldur óhöppum í æskulífi nútímans.
☆ ☆ ☆
Kvikmyndin Martin Luther hefir nú verið til sýnis 4000
sinum og betur til, í Bandaríkjunum. Myndina sáu 20
miljónir manns. Auk þess hefir hún verið sýnd erlendis
hjá 27 þjóðum; en bönnuð í fimm, þar sem kaþóiska kirkjan
hafði yfirráðin. Myndin er nú til sölu (ekki til leigu) í 16
millimetra stærð. Ræmurnar geta menn keypt í bóka- eða
kvikmyndaverzlunum kirkjudeildanna.