Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1955, Blaðsíða 24

Sameiningin - 01.10.1955, Blaðsíða 24
46 Sameiningin Divorcees Anonymous heitir klúbbur í Presbytéra- söfnuði vestur í Los Angeles. Hefir hann verið starfandi um fimm ára skeið. Fólk, sem lent hefir í hjónaskilnaði, skipar þennan félagsskap. Konur eru þar í meiri hluta að sögn. Starfsemi félagsins er svipuð þeirri, sem Alcoholics Anonimous hafa rækt á öðru sviði í mörg ár. Félagsmenn leitast við að semja frið á milli hjóna, og njóta aðstoðar hjá prestum, læknum og sálfræðingum, þegar þess virðist þörf. Viðleitnin hefir haft allgóðan árangur. Annar Presbytéra-söfnuður í borginni Portland í Oregon hefir stofnað sams konar klúbb, með svipuðu mark- miði, en undir öðru nafni. ☆ ☆ ☆ Biskupakirkjan í Bandaríkjunum háði ársþing sitt ná- lægt miðjum september vestur í Honolulu á Hawaii-eyjum. Áður var þingstaðurinn kjörinn í Houston suður í Texas. En þeirri ákvörðun var breytt, og þó með ágreiningi, af því að Texas, eins og Suðurríkin flest, bannar svertingjum bekkjaneyti með hvítu fólki á þingum eða samkomum. Allmikið var á þessu þingi rætt um að breyta nafni kirkjuíélagsins. Það heitir fullu nafni Prolestant Episcopal Church „Biskupakirkja Mótmælenda“. En margir félags- menn halda því fram að þessi kirkjudeild, sem er grein af ensku kirkjunni, sé í raun réttri kaþólsk, þótt móðurkirkjan segði skilið við páfann fyrir 400 árum. — Ekki var þó nafninu breytt að þessu sinni. ☆ ☆ ☆ Kaþólskur biskup, Alfonso Feroni, komst fyrir skömmu inn í borgina Hong Kong úr höndum Kínastjórnar — mjög aðfram kominn af harðrétti og meiðingum. Kommúnistar höfðu veitt honum sinn alræmda heilaþvott, og líklega sakað hann um njósnir, eins og þeim herrum er títt. Fyrst eftir lausnina gat hann aðeins stunið upp orði og orði: „Útvarp, kommúnista, lampaljós, hljómauki — dog og nótt.“ Hann hafði létzt um sextíu pund í fangavistinni. „Ég lét mig aldrei,“ bætti hann við, eftir stundarhvíld. „Ég á mínar hugsanir11, sagði ég, „og þið breytið þeim aldrei“. Bolsar í Kína ofsækja nú kristna menn af alefli, og ekki sízt þá sem kaþólskir eru, segir annar klerkur þeirrar kirkju, nýkominn úr greipum kommúnista.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.