Sameiningin - 01.10.1955, Page 27
Sameiningin
49
Bækur og rit
Árið 1952 kom út í Reykjavík bók eftir prófessor
Ásmund Guðmundsson, núverandi biskup íslands, er hann
nefndi Ævi Jesú. Það er ekki ætlunin hér að rita ýtarlega
um bók þessa, því að svo hefur þegar verið gjört á ýmsum
stöðum áður. Sameiningin vill samt geta hennar nú, því að
hún er til sölu í Winnipeg hjá Dr. Valdimar J. Eylands og
kostar fjóra dollara.
Höfundurinn, Dr. Ásmundur Guðmundsson, er þegar
svo kunnur íslendingum, að engin þörf er á því að kynna
hann lesendum blaðsins. Um aldarfjórðungsskeið var hann
kennari við Guðfræðideild Háskóla íslands og mun mikill
hluti hinna yngri presta á íslandi vera í hópi nemenda hans.
Margt hefur hann ritað um guðfræðileg efni, enda er hann
afkastamikill með afbrigðum. Ávöxtur starfs hans og kóróna
er bókin Ævi Jesú, enda segir höfundur í formála sínum
fyrir bókinni: Um aldafjórðung hefir ævistarf mitt verið
það að stunda þessi helgu fræði, og verður nú það, sem ég
rita á því reist. Að því má ef til vill kalla þessa bók vísinda-
rit. En það er þó engan veginn ætlun mín að semja hana
aðeins fyrir nokkra lærða guðfræðinga, heldur fyrir alla
þjóðina, að svo miklu leyti sem hún vill fræðast af henni
og kann að hafa hennar not“. Það má telja einn mesta kost
bókarinnar, hversu ágætlega höfundinum hefur tekizt ein-
mitt þetta, því að bókin er afburða vel rituð og læsileg
hverjum manni, ungum sem öldnum. Var þar og bætt úr
brýnni þörf í íslenzkum bókmenntum. Ást höfundar á við-
fangsefninu er einlæg og auðséð, og greinilega veitir les-
andinn því athygli, hversu ríkulega höfundur vill vegsama
líf, starf og orð J'esú Krists. Frásögnin nær hámarki í kafl-
anum: Hann er upprisinn. Og einnig þykir mér sá þátturinn
fegurstur í bókinni allri.
Hiklaust er mælt með þessari bók, enda hafa viðtökur
þær sem hún hefur þengar fengið verið ágætar. —B. F.
☆ ☆ ☆
Heljur á dauðastund
Höfundur er Dagfinn Hauge, fangelsisprestur í Noregi
á stríðsárunum. Bókin er þýdd á íslenzku af Ástráði Sigur-