Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 29

Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 29
Sameiningin 51 alltaf hugsað sem svo, að ég hlyti að verða brjálaður, ef hann yrði kveðinn upp yfir mér. En nú finn ég, að þetta er allt öðruvísi en maður hefur hugsað sér“. Þeir voru ekki hræddir við dauðann. Olsson sagði: „Engin ógæfa.hefur hent mig. Þetta er mér lausn úr ánauð“. Karluf Böe sagði: „Mér finnst ég vera að fara í ferða- lag. Ég er að flytja þangað, sem miklu miklu betra er að vera“. Hoseth sagði: „Ég er ekki hræddur við það sem á að verða . . . . nú er ég öruggur.“ Oftedahl var að tala um hatur og hefnd og hélt svo áfram: „Ég get sjálfur fyrirgefið öllum — líka honum, sem kom upp um okkur“. „Þú veizt, að við biðjum sjálfir Guð um fyrirgefningu; þess vegna verðum við að vera fúsir til að fyrirgefa öðrum þá smámuni, sem þeir hafa gjört okkur. Svo sannarlega kallaði hann þetta smámuni. Þannig lítur það út í birtu eilífðarinnar.“ ☆ ☆ ☆ Þjóðleiðin iil hamingju og heilla Höfundur er Árni Árnason, héraðslæknir á Akranesi. Bókin er gefin út af Bókaútgáfunni Norðra 1948, (214 bls.) „Þetta er merkileg bók og athyglisverð. Hún er þrungin af margvíslegum fróðleik, djúpsæju mannviti og skarplegum athugunum. Og það er harla óvænt fyrirbrigði og sjaldgæft hér á landi, á þessum tímum, að sjá jafn skeleggjað innlegg í trúmál og kristinsdómsmál frá leikmanni í þeim fræðum . . . Það er því gleðilega hressandi að lesa frábærlega at- hyglisverða bók, sem rituð er af jafn djúpsæjum skilningi og sannfæringarkrafti og bók Árna læknis Árnasonar. Málafærsla höfundar er hógvær og rökföst, en þó einmitt þess vegna skelegg með afbrigðum. Hún er ómótstæðilega sannfærandi, en þó algjörlega laus við áróður allan og ofstæki, sem iðulega vill brenna við í áhugamálum, sem um er deilt. Það er því nýstárlegt að lesa jafn bersögla mála- færslu, en þó í fyllsta máta sanngjarna í garð andstæðinga út í yztu æsar, svo að hvergi skeikar.“ Formálinn vekur eftirtekt og sterka löngun til að eignast og lesa bókina. Hún á sérstakt erindi inn á hvert heimili.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.