Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1955, Page 30

Sameiningin - 01.10.1955, Page 30
52 Sameiningin Bókin er tilraun að bera saman kristna trú og þekkingu vorra tíma. Henni er skipt í XI kafla. I. kafli, Inngangur. II. og III. kafli, Yfirlit yfir grundvallaratriði. IV. kafli, „Sent augum yfir menningu vorra ára og bent á að henni hefur ekki tekizt að skapa betri menn og meiri hamingju“. í V. kafla, „er að því vikið hverjar séu orskari þessara mistaka, og að siðgæðisgrundvöllur efnishyggjunnar er ekki nógu traustur“. I VI. kafla, er vikið að kristindóminum: mótbárur og efnishyggja. í næstu þremur köflunum (VII.—IX.) er Guðstrú og eilífðartrú tekin til athugunar. í seinustu tveimur köflunum er talað um gildi kristindómsins. Ég hef nefnt hér tvær góðar bækur, aðallega vitnað í bækurnar og umsögn annara. Má vera að þetta verði ein- hverjum leiðarvísir til góðs. — Jóhann Fredrilcsson ☆ ☆ ☆ Sieínur og siraumar í krisini vorra iíma Saga kristninnar síðan kirkjufélagið okkar var stofnað fyrir sjötíu árum hefir verið nokkuð viðburðarík og breyti- leg. Öldur hafa risið og fallið ,stefnur komið úr ýmsum áttum og farið leiðar sinnar. Sumt af því hefir gengið í garð hjá okkur íslendingum; margt annað hefir farið fram hjá; en öll sagan er vel þess verð að hennar sé getið með nokkrum orðum í Sameiningunni. Svo stendur á, að ég hefi einmitt á þessum síðustu vikum verið að lesa tvær bækur, sem fjalla um þetta efni. Höfundarnir rekja gang þeirra mála frá sínu sjónarmiði hvor; annar ræðir um guðfræðistefnur, en hinn um afstöðu kirkjunnar við aldarhátt og þjóðlíf hér í Vesturheimi frá byrjun nítjándu aldar og fram til þessa dags. Guðfræðiritið er alveg nýtt af nálinni, og heitir: A Layman's Guide to Proiestant Theology (Leiðarvísir leik- manns í guðfræði Mótmælenda“). Höfundurinn er guð- fræðingur, en bókin er ætluð leikmönnum. Efnið er gjört sem auðveldast, en leggur þó út á djúpið, þegar þess þarf við. Kennimenn geta lesið þessa bók sér til gagns ekki síður en alþýðan.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.