Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 7
Sameiningin 53 að skýra guðshugtakið fyrir syni sínum ungum og sagði: Hann pabbi þinn elskar þig, og hann vill gera allt fyrir þig. Treystu Guði, eins og þú treystir honum pabba þínum, mundu aðeins að Guð er hinn himneski og almáttugi faðir þinn. Það var trúin á föðurinn, sem styrkti Jesús sjálfan í baráttu hans og dauðastríði. Trúðu á mig segir Jesús. Margir, sem þó telja sig kristna, hafa ekki gert sér neina ákveðna grein fyrir Kristi, hvort hann er aðeins mynd í bók, nafn á spjöldum sögunnar, eða hvort hann geri nokkurn mun til eða frá. Þar sem svo er komið hafa menn borizt með straumnum óravegu frá hinni upphaflegu kristindómsboðun eins og hún er flutt, t. d. hjá Páli postula í kapítulanum, sem pistil-lexía dagsins er tekin úr, en þar segir: . . . .Það kenndi ég yður fyrst og fremst, sem ég hefi einnig meðtekið, að Kristur dó vegna vorra synda samkvæmt ritningunum, og hann var grafinn, og að hann er upprisinn á þriðja degi samkvæmt ritningun- um, og að hann birtist Kefasi og síðan þeim tólf — vér prédikum þannig og þannig hafið þér trúna tekið.“ Sjálfur segir Jesús um sjálfan sig: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Hann hefir sagt okkur allt, sem við vitum um Guð, og líf með Guði er óhugsandi án samfélags við hann. Trúðu á framhald lífsins út fyrir gröf og dauða. Ef þú átt þá trú í hjarta þínu muntu einnig hafa glögga með- vitund um þá ábyrgð, sem hvílir á þér sem ódauðlegri vitundarveru, um það hvernig þú ferð með gjafir Guðs, tímann, tækifærin og hæfileikana, sem Guð hefir gefið þér. Kristur vinnur að því að undirbúa okkur það herbergi, sem okkur hentar bezt, hverjum eftir sínu lunderni, háttum og trú. Það er að vísu satt, að við vitum ekki mikið um himin- inn, hvar hann er, eða hvernig þar er umhorfs. En við vitum að Kristur er þar, og við treystum því að þeir séu þar einnig, sem við höfum elskað og í bili misst. Þessi trúararfur er sameign íslendinga, hvar í heimin- um sem þeir dvelja. En eins og kunnugt er, dvelja íslend- ingar aðallega á tveimur stöðum í heiminum, hér á Islandi og í Ameríku. Ég leyfi mér nú að flytja yður, sem á mig hlustið, kveðjur frá íslendingum vestan hafs. Þar eru enn margar þúsundir manna, sem mæla á íslenzka tungu, og ennþá fleiri þúsundir fólks af íslenzkum ættum, sem mæla nú ekki lengur á tungu feðra sinna, en eru sér þó með-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.