Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1956, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.12.1956, Blaðsíða 14
60 Sameiningin verið borin upp tillaga þess efnis að kvenfélagið beytti sér fyrir byggingu samkomuhúss, bæði til fundarhalda og til almennra afnota við starfsemi safnaðarins. Eftir nokkrar umræður hét safnaðarnefndin málinu fullum stuðningi, bauðst hún til að láta af hendi lóð fyrir byggingu þessa, en lóðina hafði Andrés Daníelsson gefið söfnuðinum löngu fyrr. Einnig lofaði nefndin því að útvega eins mikla sjálfboða- vinnu og unnt væri, og greiða fyrir málinu á allan hátt, en húsið skyldi vera í eigu kvenfélagsins. Þessari byggingaframkvæmd var lokið á tveimur mán- uðum, og var svo haldin stór fagnaðarhátíð 22. nóv. 1932. Mikill undirbúningur var hafður fyrir þessa hátíð; var öllum almenningi boðið til þessa fagnaðar, en þó þeim sérstaklega, sem höfðu lagt fram fé eða vinnu til þessara framkvæmda, eða greitt fyrir málinu á einhvern hátt. Á samkomu sem var haldin 15. jan. 1933 vottaði Jóhann Straumfjörð, sem hafði veitt smíði hússins forstöðu að mestu, meðlimum kvenfélagsins og öðrum konum þakkir fyrir alla fram- reiðslu þeirra á mat og kaffi á meðan á smíði hússins stóð. Gat hann þess einnig að byggingin væri nú með öllu skuldlaus. Séra Valdimar sagði upp þjónustu árið 1938, og baðst lausnar 1. ágúst sama ár, til þess að takast á hendur þjónustu í Selkirk og Winnipeg. Var uppsögn hans tekin gild og honum veitt umbeðin lausn. Hélt söfnuðurinn þeim kveðju- samsæti og kvaddi þau með þökkum. Eftir þetta messaði séra Kristinn K. Ólafsson, sem þá átti heima í Seattle, hér einu sinni í mánuði fram að þeim tíma er séra Guðmundur Páll Jónsson var kvaddur til þjónustu árið 1939. Séra Guð- mundur messaði einnig á Point Roberts og í Bellingham á ensku. Voru nú einnig teknar upp enskar kvöldguðsþjón- ustur í Blaine. Prestskonan, Margrét Johnson, kom yngra kvenfélaginu á stofn til styrktar hinu enska starfi. Um þetta skeið var sambandið við Sameinuðu lútersku kirkjuna í Ameríku (The United Lutheran Church in America) til umræðu og afgreiðslu í kirkjufélaginu. Eftir miklar um- ræður samþykkti Blaine-söfnuður að ganga í þetta samband árið 1940. Leið nú fram að árinu 1946, en þá sagði séra Guðmundur af sér þjónustu hjá söfnuðinum. Hann hafði reynzt ötull starfsmaður, og þótti fólki mjög fyrir því að hann lagði

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.