Sameiningin - 01.12.1956, Side 22
68
Sameiningin
tíðin hafði enga trú á þeim, og vildi ekki að þau yrðu unnin
af ótta við að slíkar framkvæmdir myndu skerða hagsmuni
þeirra. Hann unni þjóð sinni og ættjörð. Heimaþjóðin getur
ekki gleymt honum. Hann hefir tryggt sér sæti í bók-
menntum þjóðarinnar um aldur og' ævi. Hér vestra, þar sem
hann starfaði lengst, mun hann gleymast fyrst. Samtíðar-
menn hans og' jafnaldrar eru nú flestir farnir. Við hinir,
sem þekktum „læknirinn elskaða“, færumst einnig brátt af
sviðinu. En á meðan vér munum hann, geymum við minn-
ingu hans í þakklátum hjörtum. —V. J. E.
___________
Biblía afhent Vancouver söfnuði
Við vígslu íslenzku kirkjunnar í Vancouver í sumar
sem leið, og í tilefni af þeirri hátíðlegu athöfn, afhenti
Lincoln Johnson, fyrrverandi forseti Fyrsta lúterska safnað-
ar í Winnipeg, og fulltrúi þessa safnaðar á kirkjuþinginu,
Vancouver-söfnuði vandaða og fagra biblíu til notkunar á
prédikunarstól kirkjunnar. Við afhendingu gjafarinnar
fórust Mr. Johnson orð á þessa leið:
„Séra Eiríkur Brynjólfsson og aðrir kærir vinir:
Mér er það mikið gleðiefni að geta verið viðstaddur
þessa athöfn, og að fá tækifæri til að flytja ykkur, gest-